Handbók vefstjóra: Aðgangur að Contentful og þróunarumhverfi
Skipt um símtæki
Fylgdu þessum leiðbeiningum þegar þú skiptir um símtæki svo þú missir ekki aðgang að kerfum Stafræns Íslands.
1. Ef þú ert enn með gamla símann
Ef þú hefur aðgang að gamla símanum og Microsoft Authenticator er enn virkur þar, er einfaldast að færa auðkenninguna áður en hætt er að nota gamla símann.
Settu upp Microsoft Authenticator á nýja símanum.
Skráðu þig inn á access.stafraentisland.is.
Þegar beðið er um staðfestingu skaltu samþykkja innskráninguna með Authenticator í gamla símanum.
Farðu á slóðina aka.ms/mfasetup.
Skráðu þig þar inn og samþykktu innskráningu aftur í gamla símanum.
Veldu síðan Add sign-in method og bættu nýja símanum við sem auðkenningaraðferð.
Skráðu þig aftur inn á access.stafraentisland.is og samþykktu innskráninguna með nýja símanum.
Þegar þú hefur staðfest að nýja tækið virki sem innskráningarleið geturðu fjarlægt gamla símann úr Security info.
Ekki eyða Microsoft Authenticator af gamla símanum fyrr en þú hefur staðfest að auðkenning virki á nýja símanum.
2. Ef þú ert ekki lengur með gamla símann
Ef síminn þinn er týndur, stolinn, hefur bilað eða þú hefur ekki lengur aðgang að honum lengur.
Fáðu ný rafræn skilríki fyrir nýja símtækið þitt.
Fylgdu leiðbeiningum Auðkennis til að virkja þau.Óskaðu endurstillingu á MFA hjá þínum IT-þjónustuaðila.
Ef þú ert tengd/ur við Government-tenant í gegnum Umbru hefur þú samband við þau gegnum netfangið tolvudeild@rfs.is.
Ef þú ert ekki hjá Umbru gæti þinn þjónustuaðili hafa heimilað aðrar leiðir til innskráningar, svo sem með SMS skilaboðum, öryggislykli eða símtali, en það sést þá undir valmöguleikanum: I can’t use my Microsoft Authenticator app right now - Sign in another way þegar þú ferð inn á access.stafraentisland.is. Nýttu þær ef þær eru til staðar.
Ef þú lendir í vandræðum með Authenticator eða aðra auðkenningu inn á SSO-svæðið hefur þú samband við þinn IT-þjónustuaðila.Þegar SSO-aðgangurinn þinn er virkur aftur getur þú séð hvaða kerfum þú hefur aðgang að undir
My Apps inn á apps.stafraentisland.is.
Ef þú sérð ekki þau kerfi sem þú átt að hafa aðgang að getur verið að vafrinn sé að beina þér inn á svæði þinnar stofnunar en ekki Stafræns Íslands. Þá þarf að skipta um Organization í valmyndinni efst í hægra horninu og velja þar Stafrænt Ísland.Ef kerfi vantar í yfirlitið getur þú farið í My Access og óskað eftir aðgangi að viðkomandi kerfi. Þá er gott að tiltaka að þú hafir verið með aðgang áður.
Handbók vefstjóra
Ertu með ábendingu eða spurningu?