Að kæra niðurstöðu Vinnumálastofnunar
Rísi ágreiningur vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar má kæra hana innan þriggja mánaða frá dagsetningu hennar. Kæra skal vera skrifleg og sendast úrskurðarnefnd velferðarmála, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
Nefndin er sjálfstæð nefnd sem kveður upp úrskurði í kærumálum á sviði velferðarmála. Kærandi þarf ekki að greiða fyrir málsmeðferð fyrir nefndinni.
Úrskurðir
Nöfn einstaklinga og heimilisföng koma ekki fram við opinbera birtingu á úrskurðum nefndarinnar.
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun