Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Yfirlýsing frá landskjörstjórn
11. ágúst 2026
Yfirlýsing landskjörstjórnar send fjölmiðlum um ranga fullyrðingu í fréttaflutningi.
Í gær, 10. ágúst, birti Morgunblaðið frétt á forsíðu sinni og á mbl.is undir fyrirsögninni „Orðalag um óvissa kjósendur horfið af upplýsingavef landskjörstjórnar“ þar sem því var haldið fram að orðalagi á upplýsingavef landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna hafi verið breytt án þess að breytingarinnar væri getið.
Af þessu tilefni vill landskjörstjórn taka fram að þessi fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng. Engar breytingar hafa verið gerðar á þeim texta sem birtur er á upplýsingavef landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Komi til þess að texta kynningarefnisins verði breytt mun þess verða getið á upplýsingavefnum með skýrum hætti.
Landskjörstjórn 11. ágúst 2026