Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Málaflokkur
Félagsmál, Múlasýslur, Múlaþing
Undirritunardagur
27. mars 2023
Útgáfudagur
27. apríl 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 410/2023
27. mars 2023
AUGLÝSING
um staðfestingu á samningi sveitarstjórna Múlaþings, Vopnafjarðarhrepps og Fljótdalshrepps um sameiginlegt þjónustusvæði almennrar og sértækrar félagsþjónustu.
Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk og 4. mgr. 11. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, hafa félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið staðfest samning sveitarstjórna Múlaþings, Vopnafjarðarhrepps og Fljótdalshrepps um sameiginlegt þjónustusvæði almennrar og sértækrar félagsþjónustu. Samningurinn hefur verið kynntur innviðaráðuneytinu.
Samningurinn er gerður á grundvelli 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og er Múlaþing leiðandi sveitarfélag á þjónustusvæðinu. Samningurinn tekur til almennrar félagslegrar þjónustu á grundvelli laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og til barnaverndar og farsældarþjónustu á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002 og laga nr. 86/2021 um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, auk annarra laga er heyra undir málaflokk félagsþjónustu.
Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 27. mars 2023.
F. h. r.
Anna Tryggvadóttir.
Theódóra Sigurðardóttir.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 27. apríl 2023