Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
17. janúar 2018
Útgáfudagur
31. janúar 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 109/2018
17. janúar 2018
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1042/2003 um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði í læknadeild Háskóla Íslands.
1. gr.
Á eftir 4. málsl. 2. mgr. 5. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Nemandi skal ná lágmarkseinkunn 5,0 að meðaltali í spurningum um siðfræðileg álitaefni.
2. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 9. mgr. 102. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 17. janúar 2018.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 31. janúar 2018