Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
11. september 2017
Útgáfudagur
4. október 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 842/2017
11. september 2017
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó nr. 800/2015.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Ákvæði 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó nr. 800/2015 hljóði svo:
Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:
| 1. | Ákvörðun ráðsins 2010/788/SSUÖ frá 20. desember 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2008/369/SSUÖ, fylgiskjal 1. | |
| 1.1 | Ákvörðun ráðsins 2012/811/SSUÖ frá 20. desember 2012 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.1. | |
| 1.2 | Ákvörðun ráðsins 2014/147/SSUÖ frá 17. mars 2014 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.2. | |
| 1.3 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/620 frá 20. apríl 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.3. | |
| 1.4 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1173 frá 18. júlí 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.4. | |
| 1.5 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/2231 frá 12. desember 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.5. | |
| 1.6 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/203 frá 6. febrúar 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.6. | |
| 1.7 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/399 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.7. | |
| 1.8 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/905 frá 29. maí 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.8. | |
| 1.9 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1340 frá 17. júlí 2017 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.9. | |
| 2. | Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 frá 18. júlí 2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2. | |
| 2.1 | Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 521/2013 frá 6. júní 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.1. | |
| 2.2 | Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 271/2014 frá 17. mars 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.2. | |
| 2.3 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/614 frá 20. apríl 2015 um framkvæmd 4. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.3. | |
| 2.4 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/613 frá 20. apríl 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 889/2005, fylgiskjal 2.4. | |
| 2.5 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/1165 frá 18. júlí 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.5. | |
| 2.6 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/2230 frá 12. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.6. | |
| 2.7 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/199 frá 6. febrúar 2017 um framkvæmd 5. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.7. | |
| 2.8 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/396 frá 7. mars 2017 um framkvæmd 5. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.8. | |
| 2.9 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/904 frá 29. maí 2017 um framkvæmd 2. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.9. | |
| 2.10 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1326 frá 17. júlí 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.10. | |
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vefjum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. október 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar „Skrá yfir varnartengdar vörur“. Tilskipunin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.
Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.
Fylgiskjöl 1-1.3 eru birt sem fylgiskjöl 1-4 með reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó nr. 800/2015. Fylgiskjöl 2-2.4 eru birt sem fylgiskjöl 5 og 7-10 við sömu reglugerð.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 11. september 2017.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sturla Sigurjónsson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 4. október 2017