Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Neytendastofa
Málaflokkur
Lyf, Neytendavernd, Viðskipti
Undirritunardagur
13. apríl 2007
Útgáfudagur
4. maí 2007
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 384/2007
13. apríl 2007
REGLUR
um sundurliðun á verði lyfja sem seld eru gegn lyfseðli.
1. gr.
Reglur þessar taka til fyrirtækja sem selja lyf til neytenda og kveða á um skyldu til að sundurliða verð lyfja sem seld eru gegn lyfseðli. Markmið reglnanna er að bæta upplýsingar til neytenda og auðvelda verðsamanburð.
2. gr.
Við afgreiðslu á lyfjum gegn lyfseðli er skylt að sundurliða hluta neytenda í verði allra lyfja. Þannig skal koma fram á kvittun úr afgreiðslukassa, á sölunótu eða með öðrum hætti, sundurliðað verð á hverju lyfi. Ávallt skal tryggt að neytendur eigi auðvelt með að átta sig á verði hvers lyfs fyrir sig.
3. gr.
Neytendastofa getur veitt undanþágu frá reglum þessum ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.
4. gr.
Ef brotið er í bága við reglur þessar varðar það viðurlögum samkvæmt 22. og 26. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.
5. gr.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 18. gr. laga nr. 57/2005 um óréttmæta viðskiptahætti og gagnsæi markaðarins, öðlast gildi við birtingu og koma í stað reglna nr. 852/2003 sem falla jafnframt úr gildi.
Neytendastofu, 13. apríl 2007.
Tryggvi Axelsson.
Kristín Færseth.
B deild - Útgáfud.: 4. maí 2007