Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál

Undirritunardagur

19. mars 2020

Útgáfudagur

19. mars 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 230/2020

19. mars 2020

AUGLÝSING

um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga.

Á grundvelli þess að ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna á Íslandi vegna farsóttar af völdum Covid-19, hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tekið svofellda ákvörðun, með vísan til VI. bráðabirgðaákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

Til að tryggja starfhæfi sitt og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélags er öllum sveitarstjórnum heimilt að taka eftirfarandi ákvarðanir, sem fela m.a. í sér tímabundin frávik frá skilyrðum ákvæða 3. mgr. 17. gr., 5. mgr. 35. gr., 1. mgr. 40. gr., 1. og 2. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga og 5. gr. auglýsingar um leiðbeiningar um notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórna, nr. 1140/2013. Sveitarstjórnum er heimilt að taka þessar ákvarðanir á fundi þar sem allir fundarmenn taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað:

  1. Að nota fjarfundarbúnað á fundum sveitarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins, án þess að fjarlægðir séu miklar, samgöngur innan sveitarfélags séu erfiðar eða mælt sé fyrir um notkun slíks búnaðar í samþykktum sveitarfélagsins.
  2. Að ákveða að engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins með fjarfundarbúnaði.
  3. Að ákveða að valdsvið nefnda verði með öðrum hætti en mælt er fyrir um í samþykktum sveitarfélagsins.
  4. Að fela fastanefnd eða einstökum starfsmönnum sveitarfélagsins fullnaðarafgreiðslu tiltekinna mála sem varða ekki verulega fjárhag sveitarfélags og lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn, þrátt fyrir að kveðið sé á um annað í samþykktum sveitarfélagsins.
  5. Að ákveða að staðfesting fundargerða sveitarstjórnar verði með öðrum hætti en mælt er fyrir um í 10. og 11. gr. auglýsingar um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjórna, nr. 22/2013.

Heimild þessi gildir til 19. júlí 2020.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 19. mars 2020.

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Hermann Sæmundsson.

B deild - Útgáfud.: 19. mars 2020

Tengd mál