Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sjúkratryggingar Íslands

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar

Undirritunardagur

30. júní 2014

Útgáfudagur

1. júlí 2014

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 637/2014

30. júní 2014

GJALDSKRÁ

Sjúkratrygginga Íslands fyrir sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu sem eiga sér stað án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða kostnað vegna sjúkraflutninga samkvæmt gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð nr. 636/2014 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu sem eiga sér stað án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

2. gr.

Skilyrði fyrir endurgreiðslu er að framvísað sé reikningi (kvittun) vegna sjúkraflutnings sem er jafn hár eða hærri en samsvarar endurgreiðslum samkvæmt gjaldskrá þessari. Ef reikningur er lægri skal endurgreiðslan miðuð við verð sjúkraflutningsaðila.

3. gr.

Sjúkratryggingar Íslands greiða kr. 38.200 fyrir hvern sjúkraflutning skv. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. þó hins vegar 3. mgr. sömu gr. og 2. gr. reglugerðar nr. 427/2013 um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu, enda uppfylli flutningurinn kröfulýsingu heilbrigðisráðuneytisins (velferðarráðuneytisins) fyrir sjúkraflutninga frá 25. maí 2010.

Ef fleiri en einn sjúklingur er fluttur í sömu bifreið á sama tíma er einungis greitt fyrir einn flutning.

4. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, og reglugerð nr. 636/2014, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu sem eiga sér stað án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, öðlast nú þegar gildi og tekur til þjónustu sem veitt er á tímabilinu frá 1. júlí 2014 til og með 31. mars 2015.

Sjúkratryggingum Íslands, 30. júní 2014.

Steingrímur Ari Arason.

Ragnar M. Gunnarsson.

B deild - Útgáfud.: 1. júlí 2014

Tengd mál

Stjórnartíðindi