Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Iðnaðarráðuneytið (2001-2012)

Málaflokkur

Orkumál, Akureyri, Þingeyjarsýslur, Fjallabyggð

Undirritunardagur

14. desember 2009

Útgáfudagur

23. desember 2009

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1045/2009

14. desember 2009

GJALDSKRÁ

Gjaldskrá Norðurorku hf. fyrir heitt vatn.

1. gr.

Norðurorka hf. selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt gjaldskrá þessari og reglugerð Norðurorku fyrir heitt vatn. Gjaldskráin gildir á öllu orkuveitusvæði Norðurorku. Á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast virðisaukaskattur og önnur gjöld samkvæmt gildandi lögum og reglum á hverjum tíma.

2. gr.

Norðurorka takmarkar allajafna ekki aðgang húsveitu að vatni umfram það er heimæð og veitukerfi gera. Þó er veitunni heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstibreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu hans.

3. gr.

Fyrir afnot heitavatnsins skal greiða (allar veitur nema Ólafsfjörður og Reykjaveita):

A. Vatnsgjald.

  • Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns.
  • Grunnverð kr. 95.
  • Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp eða ef vatnsmælir, húsveita eða annar búnaður bila þannig að mæling bregst, áætlar veitan vatnsnotkun með hliðsjón af hitaþörf hússins. Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar hefst innheimta samkvæmt gjaldskrá.

B. Fastagjald.

  • Norðurorka ákveður mælisstærð fyrir hverja húsveitu. Greiða skal fast gjald sem fer eftir stærð vatnsmælis sem hér segir:
  • Fast gjald fyrir hvern mæli:
Mælir Grunnverð kr./dag
15 mm 51,94
20 mm 111,33
25 mm 215,23
32 mm 415,62
40 mm 846,09
50 mm 1.632,80

C. Heimæðagjald. Aðalheimæðar (allar veitur nema Reykjaveita):

Þvermál inntaks Grunnverð kr.
20 mm heimæð 293.236
25 mm heimæð 381.204
32 mm heimæð 514.626
40 mm heimæð 720.478
50 mm heimæð 1.044.690
65 mm heimæð 1.567.037
80 mm heimæð 2.425.909

Tengigrindargjald er kr. 43.454 og er ekki innifalið í heimæðagjaldi.

Ef heimlagnagjald, þar með talið lengdargjald, stendur ekki undir kostnaði s.s. í frágengnu hverfi er heimæðagjald fyrir nýja eða stækkaða heimæð greitt samkvæmt kostnaðaráætlun eða raunkostnaði samkvæmt nánara samkomulagi við umsækjanda.

Lengdargjald:

  1. Lengdargjald í dreifbýli er kr./metri 3.806. Lengdargjald er greitt frá stofnlögn að tengistað heimæðar að frádregnum 20 metrum.
  2. Lengdargjald í þéttbýli er kr./metri 6.766. Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðarmarka.

Í sumarbústaði, frístundahús, vinnuskúra og þess háttar skal settur skápur á útvegg fyrir inntak heimlagnar samkvæmt nánari leiðbeiningum og skilmálum sem koma fram í heimlagnabæklingi.

Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar hefst innheimta samkvæmt gjaldskrá.

Grunnverð fyrir sumarhús, frístundahús og sambærileg hús er fast gjald og lágmarksgjald sem samsvara gjaldi fyrir 300 m³ af heitu vatni.

D. Bráðabirgðaheimæðar

Hitaveita Grunnverð kr. Lengdargjald kr./m
20 mm 36.815 5.127
25 mm 36.815 5.127
32 mm 36.815 5.127

Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra í heimæð til bráðabirgðatengingar. Ef bráðabirgðaheimæð verður síðar notuð sem aðalheimæð fyrir hús, greiðist ekkert lengdargjald.

Bráðabirgðaheimæðar skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.

4. gr.

Ólafsfjörður:

Fast gjald, tengigrind og heimæðagjald er innheimt samkvæmt almennri verðskrá Norðurorku.
Heitt vatn er selt eftir mínútulítrum og vatnsmælum.
Vatnsgjald á mánuði fyrir hvern mínútulítra í hámarksstillingu hemils kr. 1.312,91.
Vatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns kr. 57,86.

5. gr.

Reykjaveita:
Fast gjald og tengigrind er innheimt samkvæmt almennri verðskrá Norðurorku.
Heitt vatn er selt eftir vatnsmælum.
Vatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns kr. 136,25.

Heimæðagjald.

Grenivík:

Þvermál inntaks Grunnverð kr.
20 mm heimæð 399.828
25 mm heimæð 519.776
32 mm heimæð 701.697
40 mm heimæð 982.376
50 mm heimæð 1.424.288
65 mm heimæð 2.136.431

Dreifbýli:

Þvermál inntaks Grunnverð kr.
20 mm heimæð 527.532
25 mm heimæð 685.762
32 mm heimæð 925.820
40 mm heimæð 1.296.147

6. gr.

Innheimtugjald er samkvæmt gjaldskrá innheimtufyrirtækisins Intrum.

kr.
Lokunargjald 2.284
Mælaálestrargjald 1.599
Seðilgjald 161
Afgreiðslugjald á vinnutíma 3.568
Afgreiðslugjald utan vinnutíma 15.459

7. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af stjórn Norðurorku, er sett samkvæmt orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967 og lögum nr. 159, 20. desember 2002 um stofnun hlutafélags um Norðurorku, staðfestist hér með til að öðlast gildi 1. janúar 2010 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 1200, 22. desember 2008.

Iðnaðarráðuneytinu, 14. desember 2009.

F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.

Guðjón Axel Guðjónsson.

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2009

Tengd mál

Stjórnartíðindi