Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Rangárþing eystra

Málaflokkur

Skipulagsmál, Rangárvallasýsla

Undirritunardagur

3. apríl 2007

Útgáfudagur

12. apríl 2007

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 314/2007

3. apríl 2007

AUGLÝSING

um deiliskipulag miðbæjar á Hvolsvelli, Rangárþingi eystra.

Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, staðfesti sveitarstjórn Rangárþings eystra á fundi sínum 26. október 2006, nýtt deiliskipulag miðbæjarins á Hvolsvelli.

Deiliskipulag miðbæjarins á Hvolsvelli.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag miðbæjarins á Hvolsvelli. Mörk deiliskipulagsins afmarkast af Hvolsvegi, Vallarbraut, Hlíðarvegi og vestan við Austurveg. Á skipulaginu eru svokölluð veghlið inn á Hvolsvöll beggja vegna þ.e. norðvestan við Björkina og sunnan við gamla Vegagerðarhúsið. Markmið notkunar veghliða er að hægja á umferð gegnum Hvolsvöll, auk þess að greiða fyrir allri umferð gegnum miðbæinn. Þá er einnig gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði þ.e. parhúsum, raðhúsum og fjölbýlishúsum upp á allt að 4 hæðir. Gert er ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsum á jarðhæð auk íbúða þar fyrir ofan. Einnig er gert ráð fyrir lóðum fyrir ýmsar stofnanir.
Deiliskipulagið var samþykkt á fundi skipulags- og byggingarnefndar 27. júní 2006 og staðfest á fundi byggðaráðs þann 6. júlí 2006.
Deiliskipulagsgögn hafa hlotið meðferð samkvæmt skipulags- og byggingarlögum. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hvolsvelli, 3. apríl 2007.

F.h. sveitarstjórnar Rangárþings eystra,

Rúnar Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 12. apríl 2007

Tengd mál

Stjórnartíðindi