Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykjavíkurborg
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjavík
Undirritunardagur
20. apríl 2026
Útgáfudagur
6. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 443/2026
20. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi og hverfisskipulagi í Reykjavíkurborg.
Ánanaust – Ánanaust 8 – USK25110390.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 24. mars 2026, breytingu á deiliskipulagi Ánanausts vegna lóðarinnar nr. 8 við Ánanaust. Í breytingunni felst sameining og stækkun tveggja byggingarreita fyrir starfsmannahús. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr., sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Hólmsheiðarvegur 151 (Landsnet) – USK26010049.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 31. mars 2026, breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 151 við Hólmsheiðarveg (Landsnet). Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit 1 vegna staðsetningar á fyrirhuguðu geymsluhúsnæði á lóð. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr., sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Breiðholt III, Hólahverfi, Norðurdeild – Suðurhólar – USK25040245.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, 20. nóvember 2025, breytingu á deiliskipulagi Breiðholts III, Hólahverfi, norðurdeild, vegna reits við Suðurhóla. Í breytingunni felst afmörkun þriggja lóðarskika sem mynda saman eina lóð. Á lóðinni verður heimilt að byggja 40 íbúða raðhús og sérhæðir á tveimur til þremur hæðum með bílakjallara undir og milli þeirra. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Breiðholt, hluti 6.3 – Krummahólar – USK25040244.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, 12. mars 2026, breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hluti 6.3 og skilmálaeining 6.3.3, vegna lóðar við Krummahóla, ný íbúðarlóð án heimilisfangs. Í breytingunni felst að byggingarmagn er minnkað, íbúðum og bílastæðum fækkað og lóð minnkuð til að koma fyrir botnlanga fyrir nýja byggð. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 20. apríl 2026.
Brynjar Þór Jónasson.
B deild — Útgáfudagur: 6. maí 2026