Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Málaflokkur

Menntamál, Grunnskólar

Undirritunardagur

18. mars 2026

Útgáfudagur

25. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 21/2026

18. mars 2026

LÖG

um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (símar og snjalltæki).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Við 4. mgr. 30. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er heimilt í reglugerð að kveða nánar á um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla.

2. gr.

Á eftir orðunum „um öryggi og velferð barna“ í 3. mgr. 33. gr. a laganna kemur: notkun síma og snjalltækja.

3. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 18. mars 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Inga Sæland.

A deild — Útgáfudagur: 25. mars 2026

Tengd mál