Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

29. júní 2022

Útgáfudagur

30. júní 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 787/2022

29. júní 2022

REGLUR

um útreikning á hlutfalli sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að viðhalda sveiflujöfnunarauka skv. 85. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Tilgreining landfræðilegrar staðsetningar lánaáhættu.

Fjármálafyrirtæki skal tilgreina landfræðilega staðsetningu á kröfum vegna eiginfjárgrunns fyrir allar lánaáhættur, þ.m.t. áhættuskuldbindingar í veltubók og allar verðbréfaðar áhættuskuldbindingar, við útreikning á hlutfalli sveiflujöfnunarauka í samræmi við reglugerð (ESB) nr. 1152/2014, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1152/2014 frá 4. júní 2014 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla til að tilgreina landfræðilega staðsetningu viðkomandi lánaáhættu til að reikna út hlutfall sveiflujöfnunarauka er varðar tilteknar stofnanir, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 68-71.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 17. tölul. 1. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast gildi 1. júlí 2022.

Seðlabanka Íslands, 29. júní 2022.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Elmar Ásbjörnsson
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. júní 2022

Tengd mál