Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Heilbrigðisráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar
Undirritunardagur
18. janúar 2023
Útgáfudagur
27. janúar 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 48/2023
18. janúar 2023
REGLUGERÐ
um (13.) breytingu á reglugerð nr. 1364/2019 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. janúar 2023“ í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 15. maí 2023.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. janúar 2023“ í 10. gr. reglugerðarinnar kemur: 15. maí 2023.
3. gr.
1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Forsenda fyrir endurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands er að fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni eða sjúkraþjálfara á heilsugæslustöð þar sem fram kemur sjúkdómsgreining. Þó er heimilt að víkja frá þessu skilyrði vegna meðferðar hjá sjúkraþjálfara sem nemur allt að sex skiptum á einu ári.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 21. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 18. janúar 2023.
Willum Þór Þórsson.
Arnar Bergþórsson.
B deild - Útgáfud.: 27. janúar 2023