Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli, Afurðarheiti
Undirritunardagur
7. mars 2023
Útgáfudagur
10. mars 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 239/2023
7. mars 2023
REGLUGERÐ
um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/274 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013 að því er varðar fyrirkomulag við veitingu leyfa til plöntunar á vínvið, vottun, innfærslu- og útfærsluskrána, lögboðnar yfirlýsingar og tilkynningar.
1. gr.
Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina. Ákvæði þau sem innleidd eru með reglugerð þessari skulu gilda með þeim aðlögunum sem leiða má af ákvæðum meginmáls samningsins, altækri aðlögun í inngangi að bókun 47 við samninginn og sértæka aðlögunartextanum í 1. viðbæti við bókun 47 við samninginn.
2. gr.
Flest ákvæði eftirtalinnar reglugerðar varða ekki samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Á grundvelli ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast gildi hér á landi einungis þau ákvæði sem tilgreind eru í eftirtalinni ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/274 frá 11. desember 2017 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013 að því er varðar fyrirkomulag við veitingu leyfa til plöntunar á vínvið, vottun, innfærslu- og útfærsluskrána, lögboðnar yfirlýsingar og tilkynningar og reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1306/2013 að því er varðar viðeigandi eftirlit og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/561. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 272/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 456.
3. gr.
Tollyfirvöld hafa eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 132. gr. tollalaga nr. 88/2005.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, sbr. 29. gr. laga nr. 130/2014, um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu nr. 130/2014, með síðari breytingum, og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 7. mars 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Margrét Björk Sigurðardóttir.
B deild - Útgáfud.: 10. mars 2023