Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Opinber innkaup - framkvæmdir
Undirritunardagur
22. október 2021
Útgáfudagur
28. október 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1210/2021
22. október 2021
REGLUGERÐ
um staðlað eyðublað fyrir samevrópska hæfisyfirlýsingu og stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup yfir EES viðmiðunarfjárhæðum.
1. gr.
Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2016 frá 3. júní 2016 og nr. 140/2020 frá 25. september 2020 um að bæta við XVI. viðauka EES-samningsins (Opinber innkaup) eftirfarandi reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/7 um staðlað eyðublað fyrir samevrópska hæfisyfirlýsingu bjóðanda og 2019/1780 um að taka upp stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/7 frá 5. janúar 2016 um staðlað eyðublað fyrir samevrópska hæfisyfirlýsingu bjóðanda. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 18. ágúst 2016, bls. 445.
3. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1780 frá 23. september 2019 um að taka upp stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) 2015/1986. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 31. mars 2021, bls. 97.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 122. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016, tekur þegar gildi og kemur í stað reglugerðar nr. 971/2016 um sama efni.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. október 2021.
F. h. r.
Sigurður H. Helgason.
Hrafn Hlynsson.
B deild - Útgáfud.: 28. október 2021