Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Iðnaðarráðuneytið (2001-2012)

Málaflokkur

Orkumál, Sveitarfélagið Skagafjörður

Undirritunardagur

19. júní 2007

Útgáfudagur

5. júlí 2007

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 600/2007

19. júní 2007

GJALDSKRÁ

Skagafjarðaveitna ehf. Hitaveita.

I. KAFLI

1. gr.

Skagafjarðarveitur ehf., í gjaldskrá þessari hér eftir nefnt SKV selur afnot hitaorku úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi Sveitarfélagsins Skagafjarðar og hefur umráðarétt yfir þeim eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari sbr. reglugerð staðfesta af iðnaðarráðherra fyrir SKV.

2. gr.

SKV lætur hverju húsi, sem tengt er við vatnsæðar veitnanna, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. SKV lætur setja rennslismæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selda orku við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. SKV ræður gerð rennslismæla og hemla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.

3. gr.

Einungis starfsmenn veitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta. SKV breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrir árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1 mínútulítri. Selt vatnsmagn standi ávalt á heilum eða hálfum mínútulítra.

Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til SKV. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal SKV greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða SKV, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

II. KAFLI

4. gr.

SKV rekur nú fjögur aðskilin hitaveitusvæði og dreifikerfi með vatni sem hefur mis­munandi efnainnihald og hita. Þessi svæði eru á Sauðárkróki, í Varmahlíð, á Steins­stöðum og í Hjaltadal. Gjöld fyrir eininguna af heitu vatni (m³ eða l/mín) verða því mishá eftir svæðum. Fast gjald hjá þeim notendum, sem kaupa heitt vatn eftir hemli, skal vera krónur 281 á mánuði.

Gjöld fyrir afnot heita vatnsins eru sem hér segir:

Sauðárkróksveita:

Vatnsgjald kr. 1.373,50 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Varmahlíðarveita:

Vatnsgjald kr. 2.082,60 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Steinsstaðaveita:

Vatnsgjald kr. 1.037,80 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Hjaltadalsveita:

Vatnsgjald kr. 1.037,80 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

5. gr.

Hitaveitugjöld samkvæmt 4. gr. og 8. gr. verða krafin hvern mánuð og skulu þau greið­ast til skrifstofu Skagafjarðarveitna ehf., í bönkum eða pósthúsum. Gjalddagi er við fram­vísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Það eru vanskil, ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 10 daga frá gjalddaga.

III. KAFLI

6. gr.

Heimæðargjald SKV fyrir heitt vatn skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í þéttbýli:

Rúmmál húss (utanmál)

Heimæðargjald

 

≤ 400 - 2.000 m³

=

123.520 kr. f. 400 m³

= 98,85 kr./m³ þar yfir

2.000 - 6.000 m³

=

281.678 kr. f. 2.000 m³

= 92,55 kr./m³ þar yfir

6.000 - 10.000 m³

=

651.994 kr. f. 6.000 m³

= 86,50 kr./m³ þar yfir

Meira en 10.000 m³ 

=

997.906 kr. f. 10.000 m³

= 61,80 kr./m³ þar yfir

Gjaldskrá þessi gildir í skipulögðum hverfum innan lögsagnarumdæmis Skagafjarðar.

Heimæðargjald SKV fyrir heitt vatn skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í dreifbýli:

Rúmmál húss (utanmál)

Heimæðargjald

 

≤ 400 m³

=

370.562 kr. f. 400 m³

= 296,60 kr./m³ þar yfir

Auk heimæðargjalds sem að framan greinir, skal greiða 1.976 kr. fyrir hvern lengdar­metra heimæðar frá stofnæð umfram 100 metra.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks aukagjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina sam­kvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.

7. gr.

Gjöld samkvæmt 6. gr. eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar. Er stjórn SKV heimilt að breyta þeim í samræmi við þær breytingar, sem á nefndri vísitölu verða, að fenginni staðfestingu iðnaðarráðuneytisins hverju sinni.

IV. KAFLI

8. gr.

Samkvæmt ákvæðum í 2. gr. er heimilt að selja heitt vatn til einstakra notenda um rúmmetramæli. SKV setur upp slíka mæla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.

Hjá notendum er kaupa vatn samkvæmt rúmmetramæli er heimilt að innheimta mæla­leigu.

Gjald fyrir hvern rúmmetra vatns skal vera:

Sauðárkróksveita:

kr. 62,60

Varmahlíðarveita:

kr. 94,95

Steinsstaðaveita:

kr. 47,30

Hjaltadalsveita:

kr. 47,30

Mælaleiga fyrir hvern mánuð skal vera sem hér segir:

Fyrir mæla ½² - ¾²

kr.

281 pr. mán.

Fyrir mæla 1² - 2½²

kr.

1.276 pr. mán.

Fyrir mæla 3² og stærri

kr.

2.408 pr. mán.

9. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda, sbr. 31. gr. reglugerðar fyrir SKV og 79. gr. orkulaga 58/1967 með síðari breytingum.

10. gr.

SKV hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara, sbr. 2. mgr. 28. gr. reglugerðar fyrir SKV.

Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er. Gjaldið skal vera það sama og mánaðarleiga á 3² mæli samkvæmt. 8. gr. gjaldskrár þessarar í hvert skipti og gjald fyrir mælaálestur (aukaálestur) skal vera það sama og mánaðarleiga á 1² – 2½² mæli samkvæmt 8. gr. þessarar gjaldskrár.

Eftirlitsmanni SKV skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun heita vatnsins.

Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi reglur um virðisaukaskatt á hverjum tíma.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af stjórn Skagafjarðarveitna ehf., staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58, 29. apríl 1967, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1048, 7. desember 2006.

Iðnaðarráðuneytinu, 19. júní 2007.

Össur Skarphéðinsson.

Kristján Skarphéðinsson.

B deild - Útgáfud.: 5. júlí 2007

Tengd mál

Stjórnartíðindi