Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
6. maí 2026
Útgáfudagur
21. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 534/2026
6. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Breyting á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna Selhellu 7-9.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. maí 2026 breyting á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna Selhellu 7-9. Breytingin felst í því að byggingarreitur hússins Selhellu 9 er stækkaður um 10,5 m til norðurs til að stækka megi flokkunarsal í húsinu. Reiturinn stækkar um 294 fermetra.
Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Breyting á deiliskipulagi Kapelluhrauns, 2. áfanga, vegna Álhellu 9.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2026 breyting á deiliskipulagi Kapelluhrauns, 2. áfanga, vegna Álhellu 9. Breytingin felst í því að bætt er við byggingarreit fyrir skilti. Skiltið er þríhyrnt og er hæð þess 15 m. Á skiltinu eru þrír skiltafletir. Innkeyrsla Álhellumegin er færð um 5 m til austurs. Bætt er við tveimur innkeyrslum inn á lóðina, einni Álhellumegin og annarri Stálhellumegin.
Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Breyting á deiliskipulagi Hellnahrauns, 2. áfanga, vegna Álfhellu 9-11.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. maí 2026 breyting á deiliskipulagi Hellnahrauns, 2. áfanga, vegna Álfhellu 9-11. Breytingin felst í því að lóðarmörk á milli Álfhellu 9 og Álfhellu 11 færast um 4 metra til vesturs. Lóðarstærðir breytast og innkeyrsla breytist samhliða færslu á lóðarmörkum. Byggingarreitur á Álfhellu 9 er stækkaður.
Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 6. maí 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Aleksandra Wegrzyniak þjónustufulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 21. maí 2026