Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
9. apríl 2026
Útgáfudagur
6. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 444/2026
9. apríl 2026
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir sjálfseignarstofnunina Hollvini 170.
1. gr. Heiti stofnunarinnar.
Sjálfseignarstofnunin heitir Hollvinir 170 og starfar skv. lögum nr. 19/1988. Stofnunin stundar ekki atvinnurekstur.
2. gr. Heimilisfang.
Heimilisfang stofnunarinnar er í Seltjarnarnesbæ.
3. gr. Markmið og ráðstöfun fjármuna.
Markmið stofnunarinnar er að bæta íþrótta- og menningarinnviði á Seltjarnarnesi, sér í lagi þá sem snúa að útivist, íþróttaiðkun og menningarstarfi, einkanlega barna, ungmenna og eldri borgara á Seltjarnanesi. Stofnunin mun einnig styðja við íþrótta- og menningarstarf á Seltjarnarnesi. Stofnunin mun þó ekki sinna verkefnum sem teljast til lögbundinna verkefna Seltjarnarnesbæjar. Verkefnum stofnunarinnar er frekar lýst í 11. gr. Stofnunin mun styðja þessa starfsemi með því að safna reglulega fjármunum til stuðnings þeim verkefnum sem stofnunin tekur fyrir hverju sinni. Allar skipulagðar fjársafnanir stofnunarinnar skulu vera framkvæmdar á þann hátt að ekki fari milli mála hvaða verkefni sé verið að styðja hverju sinni.
Ráðstafa skal fjármunum stofnunarinnar til málefna sem samræmast markmiðum hennar. Stjórn skal taka við tillögum að verkefnum sem snúa að íþrótta- og menningarinnviðum fyrir almenning á Seltjarnarnesi og skal stjórn úthluta fjármunum til þeirra verkefna sem hljóta samþykki hennar. Stjórn er óheimilt að úthluta fjármunum til hagnaðardrifinna verkefna eða verkefna sem snúa að öðru en þeim almannaheillamarkmiðum sem lýst er hér að framan.
4. gr. Stofnandi.
Stofnandi stofnunarinnar er Kári Guðjón Hallgrímsson, kt. 271177-4459.
5. gr. Stofnfé.
Stofnfé stofnunarinnar er 1.750.000 kr., sem lagt er fram af stofnanda, sbr. 4. gr. Stofnfé er óskerðanlegt.
Stofnunin ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum þeim verðmætum er hún kann að eignast síðar. Stofnandi hefur engin sérréttindi í stofnuninni.
6. gr. Fjármögnun.
Starfsemi stofnunarinnar verður fjármögnuð með styrkjum og fjárframlögum frá einstaklingum og lögpersónum.
7. gr. Styrktaraðild og hollvinir.
Allir geta gerst styrktaraðilar að Hollvinum 170 samkvæmt nánari reglum sem stjórnin setur.
Stjórn getur með samþykki aukins meirihluta ákveðið að þiggja ekki stuðning frá einstökum styrktaraðilum til að tryggja sjálfstæði og orðspor stofnunarinnar og að fjárframlög séu ávallt með markmið stofnunarinnar að leiðarljósi.
8. gr. Stjórn.
Stjórn fer með öll völd í stofnuninni.
Stjórn stofnunarinnar skal skipuð fimm einstaklingum til 3 ára í senn. Jafnframt skulu við kjör á aðalmönnum í stjórn kosnir tveir einstaklingar í varastjórn til sama tíma. Stofnandi tilnefnir fyrstu stjórn, en eftirleiðis mun fráfarandi stjórn við lok kjörtímabils kjósa nýja stjórn. Leitast skal við að fulltrúi Seltjarnarnesbæjar eigi sæti í stjórn stofnunarinnar og skal sitjandi bæjarstjóri á hverjum tíma eiga rétt til setu í stjórn eða að öðrum kosti tilnefna fulltrúa í sinn stað.
Stjórnarmenn skulu vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og skipaður fjárvörsluaðili skulu á hverjum tíma uppfylla lögbundin hæfisskilyrði til setu í stjórn stofnunarinnar. Missi stjórnarmenn, framkvæmdastjóri, eða skipaður fjárvörsluaðili hæfi til stjórnarsetu skulu þeir upplýsa sýslumann um það. Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og skipaður fjárvörsluaðili skulu skýra satt og rétt frá högum stofnunarinnar í opinberum auglýsingum eða tilkynningum, skýrslum, ársreikningi eða tilkynningum til sýslumanns.
Við val stjórnarmanna skal einfaldur meirihluti ráða. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Stjórnin stýrir öllum málefnum stofnunarinnar og kemur fram út á við fyrir hönd hennar. Stjórnin skal sjá til þess að skipulag og starfsemi hennar sé jafnan í réttu og góðu horfi. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina. Stjórn stofnunarinnar getur veitt umboð fyrir stofnunina.
Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund. Mikilvægar ákvarðanir má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi fjallað um málið, sé þess nokkur kostur. Ákvarðanir eru teknar af meirihluta stjórnar. Falli atkvæði að jöfnu ræður atkvæði formanns. Halda skal fundargerðabók um það sem gerist á stjórnarfundum.
Einstakir stjórnarmenn skulu gæta að hæfi sínu í störfum sínum fyrir stofnunina, bæði við val á verkefnum og við framkvæmdir sem stofnunin kann að koma að. Stjórn skal setja sér verklagsreglur til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra.
Stjórnarmenn fá ekki greidd stjórnarlaun eða þóknun fyrir setu í stjórn stofnunarinnar.
Framkvæmdastjóri er ritari stjórnar og situr alla fundi en fer þó ekki með atkvæðisrétt.
9. gr. Fundarboðun.
Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist þess að stjórnarfundur sé haldinn. Stjórninni er heimilt að setja sér starfsreglur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa hennar.
10. gr. Framkvæmdastjóri.
Framkvæmdastjóri er skipaður af stjórn og starfar samkvæmt þeirri stefnu sem stjórn hefur ákveðið, í umboði og á ábyrgð hennar. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur og alla starfsemi stofnunarinnar og hefur umsjón með fjármögnun í umboði stjórnar. Starf framkvæmdastjóra er ólaunað. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum allar upplýsingar um rekstur stofnunarinnar, sem þeir óska eftir og veita ber samkvæmt lögum.
11. gr. Verkefni.
Stjórn stofnunarinnar skal af kostgæfni velja verkefni í samræmi við markmið stofnunarinnar eins og þeim er lýst í 3. gr. Getur stjórn falið framkvæmdastjóra að gera tillögur að verkefnum og er jafnframt heimilt að leita eftir tillögum íbúa og félagasamtaka á Seltjarnarnesi.
Til að tryggja vandvirkni skulu virk verkefni stofnunarinnar að jafnaði eigi vera fleiri en þrjú á hverjum tíma.
12. gr. Bókhald.
Stofnunin skal færa bókhald um starfsemi sína. Stjórn, framkvæmdastjóri eða fjárvörsluaðili stofnunarinnar skal semja ársreikning fyrir hvert reikningsár í samræmi við lög um bókhald, nr. 145/1994.
Ákvæði laga um bókhald gilda um hæfi og störf skoðunarmanna og trúnaðarmanna. Trúnaðarmenn mega ekki sitja í stjórn eða gegna stjórnunarstörfum fyrir stofnunina.
13. gr. Endurskoðendur.
Stofnunin skal kjósa einn eða fleiri endurskoðendur, endurskoðunarfyrirtæki, skoðunarmenn eða trúnaðarmenn til að yfirfara ársreikning og varamenn þeirra. Endurskoðendur má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna stofnunarinnar.
Ákvæði laga um endurskoðendur og endurskoðun gilda um hæfi og störf endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja.
Ársreikningur skal fullgerður og undirritaður eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Ársreikningur skal lagður fram á stjórnarfundi stofnunar til samþykktar. Senda skal sýslumanni áritaðan ársreikning fyrir næstliðið ár eigi síðar en 31. ágúst ár hvert.
14. gr. Reikningsárið.
Reikningsárið er almanaksárið og er fyrsta reikningstímabil frá stofnun sjálfseignarstofnunarinnar og til næstu áramóta.
15. gr. Breyting skipulagsskrár, sameining og niðurlagning.
Til þess að breyta skipulagsskrá þessari, sameina stofnunina annarri sjálfseignarstofnun eða leggja hana niður, þarf samþykki allra stjórnarmanna stofnunarinnar. Slíkt skal svo borið skriflega undir embætti sýslumanns. Komi til niðurlagningar stofnunarinnar skal hreinni eign hennar varið til markmiðanna sem greint er frá í 3. gr. hér að ofan eða skyldra markmiða.
16. gr. Staðfesting sýslumanns.
Leita skal staðfestingar sýslumanns á skipulagsskrá þessari.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 9. apríl 2026.
Thelma Dögg Theodórsdóttir.
Martyna Julia Czubaj.
B deild — Útgáfudagur: 6. maí 2026