Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
5. maí 2026
Útgáfudagur
21. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 532/2026
5. maí 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 140/2008.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Sýslumaðurinn á Vestfjörðum skal annast framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988, og reglugerðar þessarar.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Gildissvið og framkvæmd.
2. gr.
Í stað orðanna „Norðurlandi vestra“ hvarvetna sem þau koma fram í reglugerðinni kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Vestfjörðum.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- Greinin orðast svo: Forsvarsmönnum sjálfseignarstofnunar, starfsmönnum hennar, skoðunarmönnum og endurskoðendum er skylt að veita sýslumanninum á Vestfjörðum allar upplýsingar og aðstoð sem eru honum nauðsynlegar til að gegna skyldum sínum samkvæmt lögum nr. 19/1988 og reglugerð þessari.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Upplýsingaskylda gagnvart sýslumanni.
4. gr.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Allar sjálfseignarstofnanir með staðfesta skipulagsskrá skulu skráðar í fyrirtækjaskrá og tilkynna sýslumanni um kennitölu sína.
5. gr.
2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Stjórnarmenn skulu vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Óheimilt er að skipa lögaðila í stjórn. Hafi einstaklingur á síðustu þremur árum hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir verknað sem brýtur gegn almennum hegningarlögum, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. eða lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda er hann ekki bær til að sitja í stjórn sjálfseignarstofnunar.
6. gr.
2. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Fjárvörsluaðili skal vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Hafi einstaklingur á síðustu þremur árum hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir verknað sem brýtur gegn almennum hegningarlögum, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. eða lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda er hann ekki bær til að vera fjárvörsluaðili sjálfseignarstofnunar.
7. gr.
2. málsl. 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Sýslumaður getur átt frumkvæði að þessum aðgerðum.
8. gr.
Í stað orðsins „Ríkisendurskoðun“ í 16. gr. reglugerðarinnar kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sýslumaður.
9. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 1. gr. og 7. gr. laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 1125/2006.
Dómsmálaráðuneytinu, 5. maí 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild — Útgáfudagur: 21. maí 2026