Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar

Undirritunardagur

21. júní 2023

Útgáfudagur

10. júlí 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 731/2023

21. júní 2023

REGLUGERÐ

um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1239/2018 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Á eftir 4. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein:

Tæknifrjóvgun hefst með því að kynfrumum, eggi eða sæði, er safnað. Kynfrumur eru ýmist frystar eða egg frjóvgað og tilbúnir fósturvísar frystir eða settir upp. Hverri meðferð lýkur með einni uppsetningu fósturvísis eða fósturvísa, óháð því hve margir fósturvísar kunna að hafa orðið til í ferlinu.

2. gr.

B-liður 3. tl. 3. gr. reglugerðarinnar skal orðast svo: Fyrir að þýða egg og frjóvga, sbr. a-lið 3. tl., eða eina uppsetningu á fósturvísi sem hefur verið frystur.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 21. júní 2023.

Willum Þór Þórsson.

Guðlaug Einarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 10. júlí 2023

Tengd mál

Stjórnartíðindi