Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Múlaþing
Málaflokkur
Múlaþing, Leikskólar
Undirritunardagur
14. júní 2024
Útgáfudagur
1. júlí 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 772/2024
14. júní 2024
REGLUR
um innritun í leikskóla Múlaþings.
1. gr.
Sækja má um leikskólapláss frá fæðingu barns, eða strax og kennitala þess hefur verið skráð. Sótt er um leikskóla, sbr. 26. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008, rafrænt á heimasíðu Múlaþings, www.mulathing.is, undir umsóknir.
2. gr.
Skilyrði fyrir inngöngu í leikskóla er að barn eigi lögheimili í Múlaþingi. Barnið getur verið á umsóknarlista þótt lögheimili sé annars staðar. Úthlutunin er einnig háð því skilyrði að foreldri sé ekki í vanskilum með leikskólagjöld.
3. gr.
Víkja má frá meginreglum um inngöngu nemenda í leikskóla ef sérstakar aðstæður krefjast þess og forgang í leikskóla eiga:
Börn
einstæðra
foreldra.
Börn
í
elsta
árgangi
leikskóla.
Börn
starfsmanna
leikskóla
Múlaþings.
Börn
geta
fengið
forgang
skv.
ákvörðun
leikskólafulltrúa
og
fræðslustjóra,
vegna
sérþarfa
eða
félagslegra
erfiðleika.
Beiðni
um
forgang
þarf
að
fylgja
bréf
frá
félagsmálastjóra,
félagsráðgjafa,
viðurkenndum
greiningaraðila,
lækni
eða
öðrum
eftir
því
sem
við
á.
Ef
foreldri/forráðamaður
hefur
athugasemdir
við
niðurstöðu
má
vísa
erindinu
til
fjölskylduráðs.
4. gr.
Aðalinnritun í leikskóla fer fram í apríl-maí og eru börn þá innrituð í stað þeirra sem útskrifast og hætta. Börn eru innrituð í leikskóla eftir aldri þannig að eldri börn ganga fyrir þeim yngri.
Að jafnaði eru leikskólapláss í boði fyrir börn sem náð hafa eins árs aldri við upphaf skólaárs leikskólans 1. september. Að auki er innritað á haustin og í janúar allt eftir lausum plássum og aðstæðum hverju sinni í leikskólum þegar barn hefur náð eins árs aldri.
Ef pláss losnar í annan tíma á skólaárinu þarf að taka tillit til þess aldursviðmiðs og tíma sem losnar þegar úthlutað er af biðlista í plássið.
5. gr.
Þegar barn hefur fengið inngöngu í leikskóla fá foreldrar/forsjáraðili staðfestingu í tölvupósti frá leikskólastjóra. Í flestum tilfellum hefst leikskólagangan við upphaf næsta skólaárs eða eftir að sumarleyfi leikskólans lýkur og varir fram að sumarleyfi árið sem barnið verður 6 ára.
6. gr.
Reglur þessar eru settar með stoð í 26. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og öðlast gildi 1. ágúst 2024. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 788/2023 um leikskóla Múlaþings.
Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 12. júní 2024.
Egilsstöðum, 14. júní 2024.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 1. júlí 2024