Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Rangárvallasýsla

Undirritunardagur

25. júní 2008

Útgáfudagur

26. júní 2008

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 614/2008

25. júní 2008

AUGLÝSING

um deiliskipulag Kirkjuhvolsreits á Hvolsvelli, Rangárþingi eystra.

Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 samþykkti sveitarstjórn Rangárþings eystra á fundi sínum 26. október 2007, deiliskipulag fyrir svokallaðan Kirkjuhvolsreit, sem er u.þ.b. 3 ha að stærð. Svæðið er á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2003-2015, merkt sem svæði fyrir þjónustustofnanir og íbúðarsvæði fyrir aldraða.

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir stækkunarmöguleika á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, upp á tvær hæðir samtals 2200 m². Þá er gert ráð fyrir byggingarreitum fyrir 21 einnar hæðar íbúðum í sérbýli ætluðu öldruðum, og eru þar af 5 svokallaðar öryggisíbúðir í raðhúsi. Hinar 16 íbúðirnar eru í 8 parhúsum, sérhönnuðum fyrir aldraða.

Greinargerð og uppdráttur hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um.

Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hvolsvelli, 25. júní 2008.

F.h. sveitarstjórnar Rangárþings eystra,
Rúnar Guðmundsson,
byggingar- og skipulagsfulltrúi Rangárþings bs.

B deild - Útgáfud.: 26. júní 2008

Tengd mál

Stjórnartíðindi