Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Minjastofnun Íslands
Málaflokkur
Menningarmál, Menningarminjar
Undirritunardagur
14. júní 2019
Útgáfudagur
1. júlí 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 620/2019
14. júní 2019
REGLUR
um skráningu jarðfastra menningarminja vegna skipulags og framkvæmda.
1. gr. Markmið.
Minjastofnun Íslands setur reglur um skráningu fornleifa og friðaðra og friðlýstra húsa og mannvirkja og skil á gögnum þar að lútandi, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, sbr. 15. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012. Minjastofnun Íslands setur reglur um lágmarkskröfur sem gera skal til skráningar fyrir hvert skipulagsstig, sbr. 16. gr. sömu laga.
Tilgangur reglnanna er að auka samræmi við skráningu jarðfastra menningarminja um allt land. Skráning jarðfastra menningarminja veitir upplýsingar um eðli og ástand menningarminja á Íslandi auk þess sem heildarsýn um umfang slíkra minja í sveitarfélögum stuðlar að skilvirkni við gerð skipulags og útgáfu leyfa til framkvæmda.
2. gr. Tilkynning til Minjastofnunar Íslands um skipulagsgerð.
Skipulagsyfirvöld skulu tilkynna Minjastofnun Íslands um fyrirhugaða gerð skipulagsáætlana og verulegar breytingar á þeim, með því að senda stofnuninni lýsingu á skipulagsverkefninu til umsagnar. Ef stofnunin metur það svo að þörf sé á skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja skal sá sem ber ábyrgð á skipulagsgerð, í samræmi við skipulagslög, standa straum af kostnaði við skráninguna. Ríkissjóður skal þó bera kostnað af fornleifaskráningu sem fram fer innan þjóðlendu nema um annað hafi verið samið, sbr. 16. gr. laga um menningarminjar. Við umfangsmiklar framkvæmdir skal sá sem fyrir þeim stendur bera kostnað af vettvangsskráningu fornleifa, sbr. 28. gr. sömu laga.
Fornleifa-, húsa- og mannvirkjaskráning skal unnin af fagaðilum er búa yfir sérþekkingu og reynslu á sviði skráningar og skal skráningin vera í samræmi við staðla Minjastofnunar Íslands.1
Þegar
skipulagstillaga
liggur
fyrir
skal
hún
send
Minjastofnun
Íslands
til
umsagnar.
____________
1
http://www.minjastofnun.is/minjar/skraning-fornleifa/skraningarstadlar/.
3. gr. Skráning minja vegna aðalskipulags.
Fornleifar, hús og mannvirki í þéttbýli og á svæðum þar sem eru fyrirhugaðar framkvæmdir sem valda jarðraski á skipulagstímanum skulu skráðar á vettvangi áður en aðalskipulag er samþykkt. Undir þetta falla allar byggingaframkvæmdir, auk þess sem önnur framkvæmdasvæði þar sem jarðrask er fyrirsjáanlegt geta fallið hér undir. Skilgreining slíkra svæða skal gerð í samráði við minjavörð hvers landshluta. Þetta á einnig við um framkvæmdir í sjó og vötnum. Fornleifaskráningu skal vinna í samræmi við staðla Minjastofnunar Íslands um fornleifaskráningu.2
Gera skal grein fyrir húsum og mannvirkjum sem falla undir lög um menningarminjar í húsaskrá. Húsaskráningu skal vinna í samræmi við staðla Minjastofnunar Íslands um húsaskráningu.3
Upplýsingar um friðlýst hús og mannvirki eru aðgengilegar á vef Minjastofnunar Íslands.4
Upplýsingar um friðuð og umsagnarskyld hús má fá úr fasteignaskrá, en þær skulu birtar með fyrirvara um að ekki sé alltaf um að ræða rétt byggingarár í þeirri skrá.
Í
undantekningartilvikum
mun
stofnunin
samþykkja
að
skráning
fornleifa,
húsa
og
mannvirkja
vegna
aðalskipulags
verði
unnin
á
gildistíma
skipulagsáætlunar
ef
gert
er
samkomulag
með
tímasettri
áætlun,
sem
er
undirrituð
af
fulltrúum
sveitarfélags
og
Minjastofnunar,
sbr.
2.
mgr.
16.
gr.
laga
um
menningarminjar.
____________
2
http://www.minjastofnun.is/minjar/skraning-fornleifa/skraningarstadlar/.
3
http://www.minjastofnun.is/gagnasafn-/leidbeiningarit/.
4
http://www.minjastofnun.is/hus-og-mannvirki/fridlyst-hus-og-mannvirki/.
4. gr. Skráning minja vegna deiliskipulags.
Skipulags- og byggingarfulltrúar og/eða framkvæmdaraðili skal tilkynna Minjastofnun Íslands um fyrirhugaða gerð deiliskipulags með því að senda stofnuninni lýsingu á skipulagsverkefninu til umsagnar, sbr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Minjastofnun Íslands mun þá kanna aðstæður á skipulagssvæðinu, t.d. með úttekt á vettvangi. Minjastofnun Íslands leggur mat á hvort þörf sé að afla frekari gagna, m.a. með skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja svo veita megi faglega umsögn.
Fornleifaskráningu vegna deiliskipulags skal vinna í samræmi við staðla Minjastofnunar Íslands um fornleifaskráningu.5 Sýnilegar fornleifar skulu mældar upp og útlínur skráðra fornleifa skulu færðar inn á skipulagsuppdrátt þannig að fram komi með skýrum hætti umfang og afstaða minjanna.
Skrá
skal
friðuð,
friðlýst
og
varðveisluverð
hús,
húsasamstæður
og
mannvirki
á
deiliskipulagsreit
í
samræmi
við
staðla
Minjastofnunar
Íslands
um
húsaskráningu,6
sbr.
einnig
húsakönnun
skv.
37.
gr.
skipulagslaga
nr.
123/2010.7
Á
deiliskipulagsuppdrætti
skal
sýna
staðsetningu
húsa
og
mannvirkja
sem
falla
undir
lög
um
menningarminjar
og
umfang
þeirra.
____________
5
http://www.minjastofnun.is/minjar/skraning-fornleifa/skraningarstadlar/.
6
http://www.minjastofnun.is/gagnasafn-/leidbeiningarit/.
7
Rétt
er
að
benda
á
að
samkvæmt
þessari
grein
skipulagslaga
ber
að
gera
húsakönnun
þar
sem
lagt
er
mat
á
varðveislugildi
svipmóts
byggðar
og
einstakra
bygginga
sem
fyrir
eru.
Skráning
friðaðra,
friðlýstra
og
varðveisluverðra
húsa
er
hluti
slíkrar
húsakönnunar
en
hún
nær
einnig
til
annarra
bygginga
innan
skipulagsreitsins.
5. gr. Skráning vegna leyfa til framkvæmda.
Óheimilt er að veita byggingar- eða framkvæmdaleyfi án undanfarandi fornleifa-, húsa- og mannvirkjaskráningar. Áður en sveitarstjórn samþykkir framkvæmdaleyfi eða byggingarleyfi skal hún ganga úr skugga um að skráning fornleifa, húsa og mannvirkja hafi farið fram á vettvangi skv. lögum um menningarminjar, sbr. 4. gr. reglna þessara. Liggi ekki fyrir samþykki Minjastofnunar Íslands á skráningarskýrslu og skráningargögnum, eða vafi leikur á hvort fullnægjandi skráning liggi fyrir, skal leitað samráðs við Minjastofnun Íslands sem tekur afstöðu til þess hvort vettvangskönnun nægi til grundvallar leyfisveitingar eða hvort afla þurfi frekari gagna með skráningu á vettvangi.
Sveitarstjórn getur sett skilyrði í framkvæmdaleyfi um tilhögun framkvæmda m.t.t. menningarminja.
6. gr. Skil á gögnum.
Afhenda
ber
Minjastofnun
Íslands
öll
gögn
er
varða
skráningu
fornleifa,
friðaðra
og
friðlýstra
húsa
og
mannvirkja,
sbr.
15.
gr.
laga
um
menningarminjar.
Annars
vegar
staðsetningargögn,
þ.e
punktaskrár
og
uppmælingar
sem
hægt
er
að
varpa
inn
á
landfræðilegan
kortagrunn
og
hins
vegar
skráningarskýrslur
á
rafrænu
formi
og
í
tveimur
prentuðum
eintökum.
Skila
ber
staðsetningargögnum
í
því
formi
sem
fram
kemur
í
leiðbeiningum
Minjastofnunar
Íslands
um
skil
á
gögnum
vegna
skráningar
fornleifa,
húsa
og
mannvirkja.8
Umsögn
Minjastofnunar
Íslands
um
umhverfismats-
og
skipulagsverkefni,
þar
sem
krafist
er
skráningar
fornleifa,
húsa
og
mannvirkja
verður
afgreidd
þegar
öllum
gögnum
hefur
verið
skilað
inn
til
stofnunarinnar.
____________
8
http://www.minjastofnun.is/media/leidbeiningarit/Skil_a_fornleifaskraningargognum.pdf.
Minjastofnun Íslands, 14. júní 2019.
Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður.
B deild - Útgáfud.: 1. júlí 2019