Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Kópavogsbær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Kópavogur
Undirritunardagur
29. desember 2025
Útgáfudagur
14. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1671/2025
29. desember 2025
AUGLÝSING
um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogsbæjar á tillögu að breyttu deiliskipulagi.
Vatnsendahvarf. Stöðvarhvarf 2-14 (sléttar tölur).
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs 9. desember 2025, breytingu á deiliskipulagi Vatnsendahvarfs fyrir lóðirnar nr. 2-14 við Stöðvarhvarf (sléttar tölur).
Í breytingunni felst að fjölbýlishús F-1 verða undanþegin kvöð um aðgengi að garði frá stigahúsi ásamt því að heimilt verður að hafa opin eða hálfopin stigahús á lóðunum. Einungis er gerð breyting á texta í greinargerð deiliskipulagsins. Uppdrættir haldast óbreyttir.
Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.
Kópavogi, 29. desember 2025.
Auður D. Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 14. janúar 2026