Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Lífeyrissjóðir
Undirritunardagur
7. apríl 2020
Útgáfudagur
27. apríl 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 385/2020
7. apríl 2020
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 290/2009, um fyrirkomulag og eftirlit með tímabundnum útgreiðslum séreignarsparnaðar.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
-
1.
mgr.
orðast
svo:
Á tímabilinu 1. apríl 2020 til 1. janúar 2021 er vörsluaðilum séreignarsparnaðar heimilt að hefja útgreiðslu séreignarsparnaðar eftir því sem nánar er mælt fyrir um í ákvæði þessu. -
2.
mgr.
orðast
svo:
Heimilt er á því tímabili sem tilgreint er í 1. mgr. að hefja útborgun innstæðu séreignarsparnaðar rétthafa, ásamt vöxtum, að fjárhæð sem þann 1. apríl 2020 nam samanlagt allt að 12.000.000 kr. óháð því hvort samanlagður séreignarsparnaður sé í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila. Skal sú fjárhæð greiðast út með jöfnun mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu, samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, í 15 mánuði frá því að beiðni um útgreiðslu er lögð fram hjá vörsluaðila. Útgreiðslutími styttist hlutfallslega ef um lægri útgreiðslu en 12.000.000 kr. er að ræða. - Í stað orðsins „ríkisskattstjóra“ í 4. mgr. kemur: Skattsins.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðsins „ríkisskattstjóri“ í 1.-3. mgr. kemur: Skatturinn.
- Í stað orðsins „ríkisskattstjóra“ í 2. og 4. mgr. kemur: Skattinum.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í ákvæði til bráðabirgða VIII við lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. apríl 2020.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Anna V. Ólafsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 27. apríl 2020