Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
3. mars 2023
Útgáfudagur
20. mars 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 273/2023
3. mars 2023
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 481/2010 um sértæk úrræði í námi við Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðanna „Náms- og starfsráðgjafar“ í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglnanna kemur orðið: Nemendaráðgjafar.
2. gr.
Í stað orðanna „Náms- og starfsráðgjafar“ í 1. málsl. 4. mgr. 7. gr. reglnanna kemur orðið: Nemendaráðgjafar.
3. gr.
Í stað orðanna „Náms- og starfsráðgjafar“ í 2. málsl. 1. mgr. 9. gr. reglnanna kemur orðið: Nemendaráðgjafar.
4. gr.
Í stað orðanna „Náms- og starfsráðgjafar“ í d-lið 13. gr. reglnanna kemur orðið: Nemendaráðgjafar.
5. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 3. mars 2023.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 20. mars 2023