Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Garðabær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Garðabær

Undirritunardagur

5. maí 2026

Útgáfudagur

6. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 449/2026

5. maí 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Garðabæ.

Skipulagsstjóri Garðabæjar samþykkti á afgreiðslufundi 24. apríl 2026 eftirfarandi:

Skerpluholt 2.

Tillagan gerir ráð fyrir því að heimilt verði að gera ráð fyrir kjallara, þar sem hæðarlega lóðar gefur tilefni til. Flatarmál kjallara má vera allt að 100 m² og nýtingarhlutfall á lóð verður að hámarki 0,45 en byggður flötur á lóð 30%. Einnig er gert ráð fyrir að svalir geti náð allt að 1 m út fyrir byggingarreit.

Vetrarmýri – Smalaholt.

Tillagan gerir ráð fyrir breytingu skipulagsmarka.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi 16. apríl 2026 eftirfarandi:

Vesturhraun 3.

Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits við húsgafl að sunnanverðu að götu. Einnig er gert ráð fyrir að ákvæði um vegghæð hækki úr 7,5 m í 8,35 m.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi 5. febrúar 2026 eftirfarandi:

Hnoðraholt N – leikskóla- og þjónustulóð.

Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðir fyrir búsetukjarna og leikskóla verði felldar út enda gerir tillaga að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholt, ráð fyrir sömu lóðum á öðrum stað. Afmörkun deiliskipulagssvæðis hefur verið felld að afmörkun tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholt.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi 15. maí 2025 eftirfarandi:

Hnoðraholt norður – deiliskipulagsbreyting.

Deiliskipulagsmörkum er breytt á austurhluta skipulagsins.

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.

Garðabæ, 5. maí 2026.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 6. maí 2026

Tengd mál