Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
22. september 2021
Útgáfudagur
30. september 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1081/2021
22. september 2021
REGLUR
um afmörkun á kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um greiningu og afmörkun á fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sem kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu.
2. gr.
Aðferðafræði
við
að
greina
og
afmarka
kerfislega
mikilvæg
fjármálafyrirtæki
á
alþjóðavísu.
Um greiningu og afmörkun Seðlabanka Íslands á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum á alþjóðavísu og röðun þeirra í flokka eftir kerfislegu mikilvægi fer eftir framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1222/2014, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.
3. gr. Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1222/2014 frá 8. október 2014 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla til nánari útskýringar á aðferðafræðinni við að greina kerfislega mikilvægar stofnanir á alþjóðavísu og til skilgreiningar á undirflokkum kerfislega mikilvægra stofnana á alþjóðavísu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 72-81.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1608 frá 17. maí 2016 um breytingar á framseldri reglugerð (ESB) nr. 1222/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla til nánari útskýringar á aðferðafræðinni við að greina kerfislega mikilvægar stofnanir á alþjóðavísu og til skilgreiningar á undirflokkum kerfislegra stofnana á alþjóðavísu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 106-108.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í i-lið 3. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 22. september 2021.
|
Ásgeir
Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig
Júníusdóttir framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 30. september 2021