Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

23. október 2015

Útgáfudagur

9. nóvember 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1011/2015

23. október 2015

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið nr. 760/2014.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði 2. gr. reglugerðarinnar hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2013/798/SSUÖ frá 23. desember 2013 um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 1).
1.1 Ákvörðun ráðsins 2014/125/SSUÖ frá 10. mars 2014 um breytingu á ákvörðun 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 1.1).
1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/863/SSUÖ frá 1. desember 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 1.2).
1.3 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/336 frá 2. mars 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 1.3).
1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/739 frá 7. maí 2015 um breytingu á ákvörðun 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 1.4).
1.5 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1488 frá 2. september 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 1.5).
2. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 224/2014 frá 10. mars 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 2).
2.1 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1276/2014 frá 1. desember 2014 um framkvæmd 1. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 2.1).
2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/324 frá 2. mars 2015 um framkvæmd 3. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 2.2).
2.3 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/734 frá 7. maí 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 2.3).
2.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/1485 frá 2. september 2015 um framkvæmd 1. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu (sjá fylgiskjal 2.4).

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra vísað á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

2. gr. Breytingar á fylgiskjölum.

Fylgiskjöl 1, 1.1 og 2 eru ekki birt hér en koma fram í reglugerð nr. 760/2014 sem fylgiskjöl 1, 2 og 4.

3. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 23. október 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 9. nóvember 2015

Tengd mál