Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

3. desember 2021

Útgáfudagur

20. desember 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1460/2021

3. desember 2021

REGLUR

um upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að veita upplýsingar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og reglugerð um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017.

2. gr. Upplýsingaskylda fjármálafyrirtækja.

Fjármálafyrirtæki skal birta upplýsingar skv. 18. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og VIII. hluta reglugerðar um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017, með þeim hætti og með þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2021/637, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/637 frá 15. mars 2021 um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi birtingu upplýsinga sem um getur í II. og III. bálk í 8. hluta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 og fellir úr gildi framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1423/2013, framselda reglugerð (ESB) 2015/1555, framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/200 og framselda reglugerð (ESB) 2017/2295.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1018 frá 22. júní 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/637 um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi birtingu vísa sem notaðir eru til að tilgreina kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu og sem fellir úr gildi framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1030/2014.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/637 og 2021/1018 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R0637, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 136, þann 21. apríl 2021, bls. 1-327;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R1018, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 224, þann 24. júní 2021, bls. 6-8.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í b-lið 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi þegar í stað. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 1085/2021 um upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja.

Seðlabanka Íslands, 3. desember 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 20. desember 2021

Tengd mál