Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarsvið Reykjavíkur
Málaflokkur
Reykjavík, Félagsmál
Undirritunardagur
6. desember 2010
Útgáfudagur
27. desember 2010
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1026/2010
6. desember 2010
REGLUR
um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.
I. KAFLI
Almenn atriði.
1. gr.
Inntak fjárhagsaðstoðar.
Skylt er að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum, sbr. og III. kafla reglna þessara.
Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna, m.a. vegna heimilisstofnunar, náms eða óvæntra áfalla, sbr. IV. kafla reglna þessara.
Gefa skal sérstakan gaum að fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum barnafjölskyldna og meta sérstaklega þarfir barna vegna þátttöku þeirra í þroskavænlegu félagsstarfi, í samræmi við 30. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sbr. og 16. og 17. gr. þessara reglna.
Jafnan skal kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, svo og skal kanna rétt til aðstoðar samkvæmt lögum um námsstyrki.
Fjárhagsaðstoð skal veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði velferðarráðs, svo sem ráðgjöf og leiðbeiningar, í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
2. gr.
Framfærsluskylda.
Hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Fólk sem er í skráðri sambúð í Þjóðskrá á sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón.
3. gr.
Lækkun grunnfjárhæðar.
Hafi umsækjandi hafnað atvinnu eða sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa eða hafnað starfsleitaráætlun, skal greiða hálfa grunnupphæð til framfærslu eins og er tilgreint í III. kafla reglna þessara þann mánuð sem hann hafnar vinnu, svo og mánuðinn þar á eftir.
Sama á við atvinnulausan umsækjanda sem ekki framvísar minnisblaði atvinnuleitanda, sbr. ákvæði 8. gr. reglna þessara, án viðhlítandi skýringa og umsækjanda sem hætt hefur þátttöku í átaksverkefni, nema veigamiklar ástæður sem fram koma við mat á aðstæðum umsækjanda mæli gegn því.
4. gr.
Réttur fylgir lögheimili.
Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram í lögheimilissveitarfélagi. Þurfi fólk á skyndilegri aðstoð að halda í dvalarsveitarfélagi er skylt að veita tímabundna aðstoð. Skal um það haft samráð við lögheimilissveitarfélag og aðstoð metin og veitt í samræmi við reglur þess. Lögheimilissveitarfélag endurgreiðir dvalarsveitarfélagi kostnaðinn, sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
5. gr.
Form fjárhagsaðstoðar.
Fjárhagsaðstoð skal að jafnaði veitt sem styrkur. Fjárhagsaðstoð er einungis veitt sem lán óski umsækjandi þess eða könnun á aðstæðum leiðir í ljós að eðlilegt sé að gera kröfur um endurgreiðslur með tilliti til eigna og framtíðartekna, sbr. 24. gr. og 25. gr. þessara reglna, sbr. og 22. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Lán eru vaxtalaus.
6. gr.
Tímabil samþykkis hverju sinni.
Fjárhagsaðstoð skal að öðru jöfnu vera greidd einn mánuð í senn og skulu ákvarðanir um aðstoð að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil en þrjá mánuði. Þegar umsækjandi fær jafnframt bætur frá Tryggingastofnun ríkisins og ljóst er að aðstæður hans muni ekki breytast, er heimilt að samþykkja aðstoð í sex mánuði í senn. Aðstæður þeirra sem fengið hafa fjárhagsaðstoð lengur en sex mánuði skulu kannaðar sérstaklega, félagsleg ráðgjöf veitt í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og skal viðkomandi bent á að leita sér aðstoðar umboðsmanns skuldara.
Í undantekningartilvikum er heimilt að veita fjárhagsaðstoð vikulega vegna sérstakra aðstæðna.
7. gr.
Fjárhagsaðstoð aftur í tímann.
Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en fjóra mánuði frá því að umsókn er lögð fram, sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Rökstuddar ástæður þurfa að liggja að baki ef aðstoð er veitt aftur í tímann og verður skilyrðum reglna þessara fyrir fjárhagsaðstoð að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um.
II. KAFLI
Umsókn um fjárhagsaðstoð.
8. gr.
Umsókn og fylgigögn.
Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram hjá þjónustumiðstöð. Í neyðartilfellum er heimilt að leggja umsókn fram í dvalarsveitarfélagi, sbr. 4. gr. Umsækjandi um fjárhagsaðstoð skal leggja fram persónuskilríki með mynd þegar umsókn er lögð fram.
Umsókn skal undirrituð á sérstök umsóknareyðublöð, þar sem fram komi upplýsingar um umsækjanda, þar með talið lögheimili, fjölskyldugerð, nafn maka og barna á framfæri, upplýsingar um skráningu í nám og nákvæmar upplýsingar um tekjur og eignir. Umsókn skal fylgja yfirlit yfir eignir og tekjur vegna síðastliðins árs, yfirlit yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka hans þann mánuð sem umsókn er lögð fram og mánuðinn á undan, þar með taldar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, innlendum og erlendum lífeyrissjóðum, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bönkum, sparisjóðum, lánastofnunum eða öðrum aðilum, barnabætur, mæðra- og feðralaun.
Með undirritun umsóknar samþykkir umsækjandi að aflað verði upplýsinga um skráningu hans í nám við þær menntastofnanir sem bjóða upp á nám sem er lánshæft, sbr. ákvæði 15. gr. reglnanna.
Umsækjanda ber að leggja fram dvalarleyfi í þeim tilfellum sem það á við.
Umsækjandi getur veitt öðrum skriflegt umboð til að sækja um aðstoð fyrir sína hönd.
Þegar umsækjandi er atvinnulaus skal hann framvísa minnisblaði atvinnuleitanda er staðfestir atvinnuleysi hans. Um er að ræða minnisblað sem gefið er út af Vinnumálastofnun og er lagt til grundvallar í viðtölum ráðgjafa stofnunarinnar við atvinnuleitendur.
Njóti umsækjandi réttar til atvinnuleysisbóta skal hann framvísa staðfestingu frá Vinnumálastofnum um greiðslu bótanna. Hafi umsækjandi ekki fengið atvinnuleysisbætur vegna veikinda skal hann framvísa læknisvottorði. Hafi hann ekki skráð sig hjá vinnumiðlun, án viðhlítandi skýringa, missir hann hlutfallslegan rétt til fjárhagsaðstoðar það tímabil.
Einstaklingar sem afplána dóma eiga ekki rétt á fjárhagsaðstoð.
9. gr.
Upplýsingar varðandi umsækjanda.
Þjónustumiðstöð getur, ef þörf krefur, aflað frekari upplýsinga um umsækjanda, m.a. hjá skattayfirvöldum, atvinnurekendum, Tryggingastofnun ríkisins, Atvinnuleysistryggingasjóði, Útlendingastofnun, innlendum og erlendum lífeyrissjóðum og nemendaskrám skóla þar sem boðið er upp á lánshæft nám. Skal það gert í samráði við umsækjanda.
Afgreiðsla umsókna stöðvast ef umsækjandi neitar að veita upplýsingar um fjárhag sinn og/eða maka síns eða aðrar upplýsingar sbr. 2. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 9. gr. reglnanna.
Skylt er að veita þjónustumiðstöðinni upplýsingar úr skattframtölum þeirra sem leita fjárhagsaðstoðar. Sama gildir um upplýsingar úr skattframtölum lögskylds framfæranda, enda hafi umsækjandi veitt þjónustumiðstöðinni umboð til að afla þessara upplýsinga, sbr. 24. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
III. KAFLI
Réttur
til
fjárhagsaðstoðar.
Mat
á
fjárþörf
og
útreikningur
fjárhagsaðstoðar.
10. gr.
Mat á fjárþörf.
Við ákvörðun á fjárhagsaðstoð skal grunnfjárþörf til framfærslu, sbr. 11. gr., lögð til grundvallar og frá henni dregnar heildartekjur, sbr. 12. gr.
Tekið skal tillit til sérstakra aðstæðna eftir því sem við á, sbr. reglur þessar.
11. gr.
Grunnfjárhæð.
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings, 18 ára eða eldri, sem rekur eigið heimili getur numið allt að 149.000 kr. á mánuði.
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til hjóna/sambúðarfólks sem reka eigið heimili getur numið allt að 223.500 kr. á mánuði. (149.000 : 2 = 74.500. 149.000 + 74.500 = 223.500).
Með rekstri eigin heimilis, sbr. ákvæði 1. og 2. mgr., er átt við þær aðstæður þegar viðkomandi býr í eigin húsnæði eða leigir húsnæði og leggur fram þinglýstan húsaleigusamning um húsnæðið.
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings sem býr með öðrum, leigir húsnæði án þinglýsts leigusamnings eða hefur ekki aðgang að húsnæði er 125.540 kr.
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings sem býr hjá foreldrum er 74.500 kr. (149.000 : 2).
Hafi einstaklingur, sem fellur undir ofangreint, forsjá barns, skal viðkomandi reiknuð full grunnfjárhæð, þ.e. 149.000 kr. á mánuði.
Gert er ráð fyrir að húsnæðiskostnaði sé mætt með greiðslu vaxtabóta og húsaleigubóta en einnig gert ráð fyrir honum í grunnfjárhæð.
Mat á fjárhagsaðstoð er óháð því hvort barn eða börn búa á heimilinu. Undantekning er þegar umsækjandi hefur skertar barnabætur í kjölfar skilnaðar/sambúðarslita og skal þá tekið tillit til skerðingarinnar við mat á fjárþörf.
Unglingar yngri en 18 ára eiga ekki rétt á fjárhagsaðstoð í eigin nafni.
Fjárhæðir verða endurskoðaðar af velferðarráði árlega í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar.
12. gr.
Tekjur og eignir umsækjanda.
Allar tekjur einstaklingsins/maka, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsaleigubætur/vaxtabætur, koma til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar. Mæðra- og feðralaun reiknast umsækjanda til tekna. Með tekjum er hér átt við allar tekjur einstaklings/maka sem ekki eru sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar skattskyldar tekjur TR, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.s.frv. Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum, skal reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna, hvort sem hann hefur skilað minnisblaði atvinnuleitanda eða ekki, nema framvísað sé læknisvottorði.
Miða skal við heildartekjur áður en tekjuskattur hefur verið dreginn frá.
Við afgreiðslu fjárhagsaðstoðar sé gert ráð fyrir að kostnaður vegna barna greiðist af barnabótum, barnabótaauka og meðlögum ef við á.
Húsaleigu- og vaxtabætur eru ekki taldar til tekna. Gert er ráð fyrir að húsnæðiskostnaði verði fyrst og fremst mætt með greiðslum vaxta- og húsaleigubóta, en einnig er gert ráð fyrir honum í grunnfjárhæð.
Eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur, eignir umfram íbúðarhúsnæði og eina fjölskyldubifreið, eða hafi hann nýlega selt eignir sínar, skal honum vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða, þó að tekjur hans séu lægri en grunnfjárhæð.
13. gr.
Greiðslur meðlags.
Þegar tekjur umsækjanda eru við eða lægri en fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum skal taka tillit til meðlagsgreiðslna með barni eða börnum sem umsækjandi hefur greitt með reglulega fram að þeim tíma að hann fær fjárhagsaðstoð. Hækkar fjárhagsaðstoðin sem nemur einu meðlagi eins og það er á hverjum tíma með hverju barni. Umsækjandi skal sýna fram á að hann hafi staðið í skilum með meðlag a.m.k. undanfarna þrjá mánuði. Átt er við meðlagsgreiðslur hverju sinni, en ekki uppsafnaðar meðlagsskuldir.
14. gr.
Atvinnurekendur, sjálfstætt starfandi einstaklingar og fólk í hlutastörfum.
Atvinnurekendur, sjálfstætt starfandi einstaklingar og fólk í hlutastörfum, sem hafa/hefur lægri tekjur en sem nema grunnfjárhæð, eiga rétt á fjárhagsaðstoð að því tilskildu að viðkomandi hafi stöðvað atvinnurekstur sinn og leitað réttar síns til atvinnuleysisbóta í samræmi við ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. og 4. mgr. 1. gr. reglna þessara.
Sé umsækjandi í hlutastarfi með tekjur undir grunnfjárhæð skal gerð krafa um að viðkomandi skrái sig hjá vinnumiðlun og leiti að fullu starfi.
15. gr.
Námsmenn.
Einstaklingar sem stunda nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, njóta ekki réttar til fjárhagsaðstoðar. Aðrir námsmenn eiga ekki rétt til fjárhagsaðstoðar til framfærslu nema fullnægt sé skilyrðum 18. gr. um námsstyrki/lán vegna náms.
IV. KAFLI
Heimildir vegna sérstakra aðstæðna.
16. gr.
Aðstoð til foreldra vegna barna á þeirra framfæri.
-
Heimilt
er
að
veita
sérstaka
fjárhagsaðstoð
til
foreldra
í
þeim
mánuði
sem
þeir
fá
greidda
fjárhagsaðstoð
til
framfærslu
samkvæmt
reglum
þessum.
Um er að ræða börn sem eiga lögheimili hjá viðkomandi foreldri.
Um er að ræða aðstoð til að greiða áfallandi greiðslur fyrir daggæslu barns í heimahúsum, leikskóla, skólamáltíðir, frístundaheimili, sumardvöl og/eða þátttöku barns í þroskandi félags- og tómstundastarfi. Ætíð skal vera um tímabundna aðstoð að ræða sem sætir endurskoðun á sex mánaða fresti. Viðmiðunarmörk aðstoðar með hverju barni eru að hámarki 12.640 kr. á mánuði.
Skilyrði fyrir aðstoð samkvæmt þessum lið er að umsækjandi nýti sér fyrst rétt sinn samkvæmt frístundakorti og þjónustutryggingu leikskóla.
Jafnframt er heimilt að veita sérstaka aðstoð vegna skólabyrjunar þann 15. ágúst og sérstaka aðstoð vegna jólahalds þann 1. desember á ári hverju. Um er að ræða 12.640 kr. fyrir hvert barn í hvort skipti. Heimildin nær til þeirra foreldra sem fá greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum í ágúst og desember ár hvert.
Leitast ber við að kanna aðstæður beggja foreldra þegar mat er lagt á umsókn um aðstoð vegna barna. -
Í
þeim
tilvikum
þar
sem
um
er
að
ræða
sérstök
meðferðar-
og/eða
stuðningssjónarmið
eða
fyrirbyggjandi
starf
á
sviði
barnaverndar,
er
heimilt
að
veita
foreldrum
styrk
vegna
áfallandi
greiðslna
sem
nema
heildarkostnaði
eða
hluta
hans
vegna
daggæslu
barns
í
heimahúsum,
leikskóla,
skólamáltíða,
frístundaheimilis,
sumardvalar,
skólagjalda
og/eða
þátttöku
barns
í
þroskandi
félags-
og
tómstundastarfi.
Ætíð
skal
liggja
fyrir
samkomulag
um
félagslega
ráðgjöf.
Ætíð
skal
vera
um
tímabundna
samþykkt
að
ræða,
sem
sætir
endurskoðun
á
þriggja
mánaða
fresti.
Skilyrði fyrir aðstoð samkvæmt þessum lið er að umsækjandi nýti sér fyrst rétt sinn samkvæmt frístundakorti og þjónustutryggingu leikskóla.
Leitast ber við að kanna aðstæður beggja foreldra þegar mat er lagt á umsókn um aðstoð vegna barna. -
Í
þeim
tilvikum
þar
sem
um
er
að
ræða
sérstök
meðferðar-
og/eða
stuðningssjónarmið
eða
fyrirbyggjandi
starf
á
sviði
barnaverndar,
er
heimilt
að
veita
foreldrum
fjárstyrk
í
tengslum
við
dvöl
barns
utan
heimilis
í
sex
mánuði
eða
skemur.
Ávallt
þarf
að
liggja
fyrir
samkomulag
um
félagslega
ráðgjöf.
Leitast ber við að kanna aðstæður beggja foreldra þegar mat er lagt á umsókn um aðstoð vegna barna.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
17. gr.
Námskostnaður barna í skóla fjarri heimabyggð.
Ef sérstök meðferðar- og/eða stuðningssjónarmið mæla með því, er heimilt að taka sérstakt tillit til námskostnaðar barna tekjulágra foreldra sem ekki geta sótt framhaldsskóla í heimabyggð. Við mat á fjárþörf skal taka mið af aðstæðum fjölskyldu, m.a. fjárhag hennar og fjarlægð skóla frá heimili. Skilyrði fyrir aðstoð vegna náms barna fjarri heimabyggð er, að sótt hafi verið um námsstyrk samkvæmt lögum um námsstyrki nr. 79/2003 og fjárþörf síðan metin að teknu tilliti til námsstyrksins.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
18. gr.
Námsstyrkir.
Námsstyrki er heimilt að veita í eftirfarandi tilvikum. Aðstoðin miðast við fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt 11. gr. reglna þessara ásamt almennum skólagjöldum, innritunarkostnaði og bókakostnaði:
| a) | Til einstaklinga á aldrinum 18-24 ára, sem ekki hafa lokið grunnskóla eða framhaldsskóla og hafa átt við mikla félagslega erfiðleika að stríða. | |
| b) | Til einstæðra foreldra á aldrinum 18-24 ára, sem ekki hafa lokið grunnskóla eða framhaldsskóla og haft hafa atvinnutekjur sem eru lægri en grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, sbr. 1. mgr. 11. gr. reglna þessara, undanfarna tólf mánuði. | |
| Skilyrði er að umsækjandi hafi átt í félagslegum erfiðleikum. | ||
| c) | Til einstaklinga á aldrinum 18-24 ára sem ekki hafa lokið framhaldsskóla og eiga eftir ólokið að hámarki tvær annir. Um sé að ræða einstakling sem ekki hefur tök á að vinna með skóla og fyrir liggur mat á því að ef ekki komi til aðstoðar sé ljóst að viðkomandi flosni upp úr námi. | |
| d) | Til einstaklinga sem hafa verið atvinnulausir án bótaréttar eða þegið fjárhagsaðstoð í sex mánuði eða lengur og hafa ekki lokið grunnnámi sem gefur rétt á námsláni. | |
| e) | Heimilt er að veita tekjulágum foreldrum fjárstyrk vegna náms 16 og 17 ára barna þeirra. Hér er átt við tekjulága foreldra sem átt hafa í langvarandi félagslegum erfiðleikum. | |
| Skal styrkurinn miða að því að greiða áætlaðan bókakostnað og skólagjöld. | ||
| Leitast ber við að kanna aðstæður beggja foreldra þegar mat er lagt á umsókn um aðstoð vegna barna. |
Leggja þarf inn umsókn tveimur mánuðum áður en nám hefst nema hvað varðar c-lið.
Starfsmaður og námsmaður skulu gera með sér samkomulag um félagslega ráðgjöf þar sem fram kemur m.a. hvernig skuli staðið að skilum varðandi skólasókn, námsframvindu og/eða einkunnir. Einkunnum skal þó ætíð skilað í annarlok.
Miðað skal við að námið leiði til þess að nemandi geti síðar hafið nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Ákvarðanir um námskostnað skulu teknar fyrir hverja önn og er heimilt að halda námsaðstoð áfram með hliðsjón af námsframvindu.
Meðlag sem umsækjandi kann að fá, reiknist honum til tekna.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
19. gr.
Styrkur vegna húsbúnaðar.
Fjárhagsaðstoð til kaupa á húsbúnaði er heimil í eftirfarandi tilvikum:
| a) | til einstaklings sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum, er eignalaus og er að stofna heimili eftir a.m.k. tveggja ára dvöl á stofnun, | |
| b) | til ungs fólks á aldrinum 18-24 ára, sem er eignalaust, sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum, hefur átt í miklum félagslegum erfiðleikum og er að stofna heimili í fyrsta sinn, | |
| c) | þegar rýma þarf íbúð af heilbrigðisástæðum, | |
| d) | þegar um er að ræða einstaklinga/hjón/sambúðarfólk sem eiga í félagslegum erfiðleikum og þurfa aðstoð vegna kaupa á nauðsynlegum heimilistækjum. Skilyrði er að viðkomandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum. |
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru 100.000 kr. nema þegar einstaklingur er að flytjast á sambýli, þá eru mörkin 50.000 kr.
Húsbúnaðarstyrkir greiðast einu sinni.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
20. gr.
Greiðsla sérfræðiaðstoðar.
-
Heimilt
er
að
veita
fjárhagsaðstoð
til
greiðslu
nauðsynlegra
tannlækninga
til
einstaklinga
sem
fengið
hafa
fjárhagsaðstoð
til
framfærslu
samkvæmt
reglum
þessum,
samfleytt
undanfarna
12
mánuði.
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru 40.000 kr. á ári.
Kostnaðaráætlun tannlæknis skal fylgja með umsókn. - Heimilt er að veita einstaklingum í eftirtöldum aðstæðum fjárhagsaðstoð til greiðslu viðtala hjá félagsráðgjöfum, sálfræðingum og geðlæknum, ef það er liður í umfangsmeiri félagslegri aðstoð og fyrirsjáanlegt að eigi sé hægt að veita þjónustuna innan þjónustumiðstöðvar eða á vegum heilbrigðisstofnana.
| a) | einstaklingum sem búa við mikla og langvarandi félagslega erfiðleika, | ||
| b) | einstaklingum eða fjölskyldum sem hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum, svo sem skyndilegum ástvinamissi eða alvarlegu ofbeldi. |
- Viðmiðunarmörk aðstoðar eru 55.000 kr. á ári.
- Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
21. gr.
Útfararstyrkir.
Heimilt er að veita aðstoð til greiðslu útfararkostnaðar þegar staðreynt hefur verið að dánarbúið getur ekki staðið undir útför hins látna. Viðmiðunarmörk eru 160.000 kr.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um útfararstyrk: Staðfest ljósrit af skattframtali hins látna, launaseðlar og greiðsluyfirlit frá tryggingum og lífeyrissjóðum, staðfesting frá stéttarfélagi um rétt til útfararstyrks, tilkynning sýslumanns um skiptalok á grundvelli eignayfirlýsingar, sbr. 25. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991, eða einkaskiptaleyfi útgefið af sýslumanni til erfingja skv. 31. gr., sbr. 28. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl.
Heimilt er að veita tekjulágum eftirlifandi maka lán eða styrk vegna útfararkostnaðar þegar dánarbúið getur ekki greitt fyrir útför hins látna og eignir eftirlifandi maka eru ekki aðrar en íbúðarhúsnæði sem umsækjandi býr í.
Heimilt er að veita foreldri eða foreldrum sem fengið hefur/hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum, fjárhagsaðstoð vegna útfararkostnaðar barns.
Samþykkt aðstoð greiðist gegn framvísun reiknings frá útfararstofu og annarra gagna um kostnað vegna útfarar.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
22. gr.
Áfallaaðstoð.
Heimilt er að veita tekjulágum einstaklingum eða fjölskyldum með tekjur undir grunnfjárhæð eða á mörkum hennar, fjárhagsaðstoð vegna skyndilegs missis búslóðar eða annars eignamissis sem orðið hefur vegna bruna eða náttúruhamfara. Aðstoðin kemur einungis til álita þegar tjónþoli hefur ekki haft heimilistryggingu eða aðra tryggingu sem bætir tjónið.
Einnig er veitt fjárhagsaðstoð til þeirra sem haft hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum til heildarþrifa á íbúð sem er orðin það heilsuspillandi að illmögulegt er að búa við þær aðstæður.
Skilyrði er að lögð séu fram gögn frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar þar að lútandi.
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru 100.000 kr.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
23. gr.
Styrkur eða lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu og til tryggingar húsaleigu.
Heimilt er að veita þeim sem fengið hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum í mánuðinum sem sótt er um og í mánuðinum á undan lán eða styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu. Þinglýstur húsaleigusamningur skal liggja fyrir eða önnur staðfesting um að samningur eigi við rök að styðjast. Miða skal við að leigufjárhæð sé í samræmi við leigu á almennum markaði.
Aðstoð á grundvelli þessarar greinar að er hámarki veitt einu sinni á ári.
Ákvæði 1. mgr. gilda einnig um þá sem njóta sérstakra húsaleigubóta.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
24. gr.
Aðstoð vegna sérstakra erfiðleika.
Heimilt er að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika, að uppfylltum öllum neðangreindum skilyrðum:
| a) | umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur, | |
| b) | staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana, | |
| c) | fyrir liggi yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á, | |
| d) | fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið, | |
| e) | fyrir liggi samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við. |
Þegar um lán er að ræða skal greiðsluáætlun fylgja með umsókn.
Eigi er heimilt að veita styrk eða lán til greiðslu skulda við banka, sparisjóði og aðrar lánastofnanir, s.s. greiðslukortafyrirtæki. Þá er hvorki heimilt að veita styrk eða lán til greiðslu skattaskulda og sekta, né heldur til greiðslu skulda við einkaaðila.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
25. gr.
Um fjárhagsaðstoð sem veitt er í formi láns.
Uppfylla þarf öll skilyrði 24. gr. þessara reglna auk eftirfarandi skilyrða:
- Skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð í formi láns er að fyrir liggi mat á endurgreiðslugetu umsækjanda. Aðeins skal veita lán þegar ljóst er að umsækjandi muni geta staðið í skilum með afborganir af því.
- Eigi er heimilt að veita lán ef umsækjandi er með lán frá Reykjavíkurborg fyrir.
- Hámark láns sem hægt er að samþykkja á þjónustumiðstöð er kr. 300.000. Hámarkslánstími sem hægt er að samþykkja á þjónustumiðstöð er sex ár. Umsóknum um hærra lán og lengri lánstíma skal vísa til velferðarráðs.
- Skilyrði er að umsækjandi veiti skriflegt samþykki fyrir reglulegri skuldfærslu fyrir afborgunum lánsins af reikningi sínum.
- Að öllu jöfn skal ekki veita umsækjanda lán, ef hann hefur fengið afskrifað lán frá Reykjavíkurborg á síðustu 12 mánuðum.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
26. gr.
Sérstök fjárhagsaðstoð í desember.
Veita skal þeim sem hafa fengið fulla fjárhagsaðstoð undangengna þrjá mánuði samfellt, sérstaka desemberuppbót sem nemur 25% af grunnfjárhæð.
Þeir sem hafa haft til framfærslu samsvarandi upphæð fyrir sama tímabil eiga einnig rétt á uppbótinni.
Gildistími umsóknar er tveir mánuðir frá samþykkisdegi.
27. gr.
Sérstök aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna.
- Heimilt er að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið er að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miðar að því að viðhalda árangri sem náðst hefur með stuðningsvinnu. Skilyrði er að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.
- Heimilt er að veita styrk til foreldra vegna sérstakra þarfa barna enda sé það hluti af umfangsmikilli stuðningsáætlun og til þess fallið að tryggja að árangur vinnu í máli viðkomandi glatist ekki. Skilyrði er að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.
- Heimilt er að veita sérstaka aðstoð til einstaklinga sem sýna fram á að þeir njóti augljóslega ekki fjárhagslegs ávinnings af því að búa með öðrum.
Gildi umsóknar er tveir mánuðir frá umsóknardegi.
V. KAFLI
Málsmeðferð,
sbr.
ákvæði
stjórnsýslulaga,
nr.
37/1993,
og
ákvæði
XV.
og
XVI.
kafla
laga
um
félagsþjónustu
sveitarfélaga.
28. gr.
Könnun á aðstæðum.
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um fjárhagsaðstoð hefur borist. Sama á við ef þjónustumiðstöð berast upplýsingar um nauðsyn á aðstoð með öðrum hætti.
Þjónustumiðstöð skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og sjá jafnframt til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.
29. gr.
Samvinna við umsækjanda.
Öflun gagna og upplýsinga skal unnin í samvinnu við umsækjanda. Við meðferð umsóknar og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, að öðrum kosti umboðsmann hans ef við á. Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði.
30. gr.
Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum.
Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi.
Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.
31. gr.
Leiðbeiningar til umsækjanda.
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður bjóða umsækjanda félagslega og fjárhagslega ráðgjöf og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Berist skriflegt erindi sem ekki snertir starfssvið þjónustumiðstöðvar, skal starfsmaður í samráði við umsækjanda framsenda erindið á réttan stað svo fljótt sem auðið er.
32. gr.
Niðurstaða og rökstuðningur synjunar.
Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð.
33. gr.
Rangar eða villandi upplýsingar.
Fjárhagsaðstoð veitt á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær er endurkræf og getur þjónustumiðstöð endurkrafið viðkomandi um fjárhæðina samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Ef sannreynt er við vinnslu máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar.
34. gr.
Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.
Starfmenn þjónustumiðstöðvar taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði velferðarráðs Reykjavíkurborgar.
Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hefur heimild til að veita undanþágu frá reglum þessum ef sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir og umsækjandi fer fram á það með sérstakri beiðni og greinargerð frá þjónustumiðstöð liggur fyrir.
35. gr.
Kynning á ákvörðun um fjárhagsaðstoð.
Þar sem starfsmenn þjónustumiðstöðvar hafa umboð til að taka ákvörðun um fjárhagsaðstoð skulu þeir kynna umsækjanda niðurstöðu tryggilega og kynna honum um leið rétt hans til að fara fram á að velferðarráð Reykjavíkurborgar fjalli um umsóknina. Umsækjandi hefur að öðru jöfnu fjögurra vikna frest til að vísa máli sínu til velferðarráðs frá því honum barst vitneskja um ákvörðun. Velferðarráð skal fjalla um umsókn og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.
Ákvörðun velferðarráðs skal kynnt umsækjanda tryggilega og um leið skal honum kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.
36. gr.
Málskot til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.
Umsækjandi getur skotið ákvörðun velferðarráðs til úrskurðarnefndar félagsþjónustu. Skal það gert innan fjögurra vikna frá því umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun velferðarráðs.
37. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem samþykktar voru af borgarráði 25. nóvember 2010 að fengnum tillögum velferðarráðs, eru byggðar á 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, og leiðbeiningum félagsmálaráðuneytisins varðandi reglur sveitarfélaga um fjárhagsaðstoð.
Reglurnar taka gildi 1. janúar 2011 og falla þá jafnframt úr gildi reglur nr. 485/2005, með síðari breytingum.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 6. desember 2010.
Jón Gnarr.
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2010