Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið (2011-2018)
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Félagsmál
Undirritunardagur
17. desember 2018
Útgáfudagur
20. desember 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1207/2018
17. desember 2018
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „520.000 kr.“ í 5. mgr. kemur: 600.000 kr.
-
Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr.:
- Í stað „123.897 kr.“ kemur: 128.357 kr.
- Í stað „171.711 kr.“ kemur: 177.893 kr.
2. gr.
Í stað „74.926 kr.“ í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: 77.624 kr.
3. gr.
Í stað „171.711 kr.“ í 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 177.893 kr.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 13. gr., 5. mgr. 18. gr., 5. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2019 og á við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2019 eða síðar. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1225/2015, um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.
Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.
Ásmundur
Einar
Daðason
félags-
og
jafnréttismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 20. desember 2018