Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælastofnun

Málaflokkur

Landbúnaður, Matvæli, Afurðarheiti

Undirritunardagur

29. janúar 2018

Útgáfudagur

12. febrúar 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 154/2018

29. janúar 2018

AUGLÝSING

frá Matvælastofnun um vernd afurðarheitisins „Íslenskt lambakjöt“ með vísan til uppruna.

Matvælastofnun hefur fallist á umsókn Markaðsráðs kindakjöts um að afurðarheitið „Íslenskt lambakjöt / Icelandic Lamb“ verði skráð verndað afurðarheiti með vísan til uppruna samkvæmt lögum nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

Hægt er að kæra ofangreinda ákvörðun til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, Reykjavík. Kærufrestur er þrír mánuðir frá birtingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðindum.

Auglýsing þessi um ákvörðun um skráningu afurðarheitis er birt í samræmi við 2. mgr. 16. gr. laga nr. 130/2014. Einnig er afurðarlýsing birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari, sbr. 14. gr. sömu laga.

Selfossi, 29. janúar 2018.

F.h. Matvælastofnunar,

Einar Örn Thorlacius lögfræðingur.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2018

Tengd mál