Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
13. desember 2021
Útgáfudagur
27. desember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1537/2021
13. desember 2021
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1160/2015 um doktorsnám og doktorspróf við hugvísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
5. ml. 6. mgr. 13. gr. reglnanna orðast svo: Verði ágreiningur fer um hann samkvæmt verklagsreglu sem háskólaráð setur, sbr. 70. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
2. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 13. desember 2021.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021