Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

6. ágúst 2019

Útgáfudagur

11. september 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 796/2019

6. ágúst 2019

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbíu nr. 887/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. og 2. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Líbýu nr. 887/2015:

1.28 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/2012 frá 17. desember 2018 um framkvæmd ákvörðunar (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 1.28.
1.29 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/539 frá 1. apríl 2019 um framkvæmd ákvörðunar (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 1.29.
2.25 Reglugerð ráðsins (ESB) 2018/2004 frá 17. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/44 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 2.25.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 6. ágúst 2019.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 11. september 2019

Tengd mál

Stjórnartíðindi