Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Árborg

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg

Undirritunardagur

20. júní 2014

Útgáfudagur

30. júní 2014

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 624/2014

20. júní 2014

AUGLÝSING

um deiliskipulag miðbæjarins á Selfossi, Sveitarfélaginu Árborg.

Á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar 30. apríl 2014 var samþykkt deiliskipulag miðbæjarins á Selfossi.
Tillagan nær til svæðis sem afmarkast af Eyravegi og Austurvegi til norðurs og aðliggjandi íbúðarlóðum við Tryggvagötu til austurs, Sunnuvegi til suðurs og Kirkjuvegi til vesturs. Skipulagssvæðið er alls um 5,57 ha að flatarmáli.
Meginmarkmið skipulagsins er að styrkja miðbæ Selfoss með heilsteyptu skipulagi en skipulagið opnar á möguleika fyrir fjölbreytta miðbæjarstarfsemi í vistlegu umhverfi. Með deiliskipulaginu er lögð áhersla á að draga jákvæða umhverfisþætti inn í bæjarmyndina þannig að bærinn njóti góðs af sérkennum sínum.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.

Selfossi, 20. júní 2014.

Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 30. júní 2014

Tengd mál

Stjórnartíðindi