Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Skagafjörður

Undirritunardagur

20. október 2025

Útgáfudagur

4. nóvember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1133/2025

20. október 2025

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Depla í Fljótum.

Skipulagsstofnun staðfesti 20. október 2025 breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.

Í breytingunni felst stækkun verslunar- og þjónustusvæðis (VÞ-2) að Deplum úr 3 ha í 3,8 ha og byggingarmagn er aukið úr 3.000 m² í 3.500 m². Afmarkaður er nýr lendingarstaður (FV-1).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsstofnun, 20. október 2025.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 4. nóvember 2025

Tengd mál