Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ísafjarðarbær
Málaflokkur
Byggingarmál, Mannvirki, Ísafjarðarbær
Undirritunardagur
3. október 2024
Útgáfudagur
11. nóvember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1241/2024
3. október 2024
GJALDSKRÁ
byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar.
Fyrir þjónustu sem byggingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar innir af hendi skal innheimta gjöld sem hér segir:
1. gr. Byggingarleyfisgjald.
Innheimt skal eftirfarandi byggingarleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem byggingarleyfi er gefið út fyrir, sbr. 51. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki. Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð byggingarleyfisskyldra erinda, lóðarblöð, yfirferð teikninga, útsetning húss og reglubundið eftirlit eftir því sem við á.
| Flokkur A: Íbúðarhúsnæði: | án vsk. |
| Einbýlishús | 243.350 kr. |
| Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús, gjald á hverja íbúð | 206.860 kr. |
| Fjölbýlishús, gjald á hverja íbúð | 121.680 kr. |
| Frístundahús | 121.680 kr. |
| Flokkur B: Atvinnu-, þjónustu- og stofnanahúsnæði: | |
| Gólfflötur allt að 500 fermetrar | 243.350 kr. |
| Gólfflötur á bilinu 500-1.000 fermetrar | 486.700 kr. |
| Gólfflötur yfir 1.000 fermetrum | 730.050 kr. |
| Flokkur C: Önnur hús, hvers konar viðbyggingar, bílageymslu- og gripahús: | |
| Nýbygging eða viðbygging allt að 40 fermetrar | 97.340 kr. |
| Nýbygging eða viðbygging frá 40-100 fermetrum | 146.010 kr. |
| Nýbygging eða viðbygging yfir 100 fermetrum | 243.350 kr. |
| Flokkur D: Annað: | |
| Minni háttar breytingar á útliti, innra skipulagi, klæðningu utanhúss o.þ.h. | 48.670 kr. |
| Meiri háttar breytingar á innra skipulagi húsnæðis, s.s. veggjum, lögnum o.þ.h. | 121.680 kr. |
2. gr. Leyfisgjöld.
| Stöðuleyfi hjólhýsa, báta og annarra muna skv. 1. gr. reglna Ísafjarðarbæjar um útgáfu stöðuleyfa (árgjald) | 30.950 kr. |
| Stöðuleyfi gáma (árgjald) | 56.410 kr. |
| Breyting á lóðarleigusamningi að beiðni lóðahafa | 19.660 kr. |
| Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs | 27.740 kr. |
| Afgreiðslugjald byggingarfulltrúa | 14.450 kr. |
| Úttekt vegna meistaraskipta | 14.740 kr. |
| Úttekt vegna byggingarstjóraskipta | 60.680 kr. |
| Lóðagjald | 43.350 kr. |
| Yfirferð aðaluppdrátta | 38.580 kr. |
| Tímavinnugjald við gerð úttekta vegna meistara- og byggingarstjóraskipta, sbr. 4. gr. gjaldskrárinnar | 22.980 kr. |
| Endurnýjun byggingarleyfis | 14.450 kr. |
| Leyfi til niðurrifs mannvirkja | 36.840 kr. |
| Breyting á skráningu, sbr. 5. gr. gjaldskrárinnar | 37.570 kr. |
3. gr. Vottorð.
| Byggingarstig húsa | 35.590 kr. |
| Afgreiðsla skráningartöflu | 38.690 kr. |
| Afgreiðsla eignaskiptayfirlýsinga, gjald á eignarhlut | skv. reikningi |
4. gr. Tímavinnugjald byggingarfulltrúa.
Af viðameiri framkvæmdum er heimilt að innheimta tímavinnugjald af þeirri vinnu sem lagt er út í við gerð úttekta vegna meistara- og byggingarstjóraskipta.
5. gr. Kostnaður skoðunarstofu.
Sé hönnun mannvirkis sérstaklega vandasöm og/eða umfangsmikil getur byggingarfulltrúi við meðferð byggingarleyfisumsóknar ákveðið að skoðunarstofa annist yfirferð hönnunargagna og úttektir á kostnað eiganda vegna framkvæmdar í heild eða að hluta, sbr. ákvæði í gr. 3.3.1 og 3.3.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
6. gr. Samþykkt og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 51. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki.
Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2025 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1353/2023.
Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 3. október 2024.
Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 11. nóvember 2024