Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
17. janúar 2018
Útgáfudagur
31. janúar 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 106/2018
17. janúar 2018
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 69. gr. reglnanna:
Á eftir 3. mgr. 5. töluliðar bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
- Deildum er heimilt að innrita doktorsnema í hlutanám og er þá miðað við 50% nám. Skal námsáætlun miðast við 50% framvindu og lengist hámarksnámstími í samræmi við það. Skráning í og úr hlutanámi getur farið fram hvenær sem er á námstíma, að fengnu samþykki doktorsnefndar og fastanefndar deildar eða fræðasviðs. Skrásetningargjald er hið sama hvort sem nemandi er skráður í fullt nám eða hlutanám.
- 3. og 4. málsl. 3. mgr. 11. töluliðar orðast svo: Doktorsnefnd fundar með doktorsnema um stöðu og framvindu verkefnisins eftir því sem þurfa þykir, en þó að jafnaði ekki sjaldnar en einu sinni á ári í tengslum við skil á árlegri framvinduskýrslu. Doktorsnefndin ber jafnframt ábyrgð á framkvæmd ítarlegs mats á þekkingu doktorsnemans einu sinni á námstímanum (t.d. vörn á rannsóknaráætlun eða mat um miðbik náms (mid-term evaluation)), á þeim fræðasviðum þar sem gert er ráð fyrir slíku mati og í samræmi við reglur hverrar deildar.
-
Á eftir 18. tölulið bætast við tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
-
M.Phil.-gráða.
Komið getur í ljós á námstíma til doktorsprófs að nemandi muni ekki ljúka doktorsnámi af persónulegum ástæðum, breytingum á fjármögnun verkefnis, óviðunandi framvindu í verkefni eða af öðrum ástæðum sem nemandi og/eða doktorsnefnd meta þannig að koma muni í veg fyrir að hægt sé að ljúka verkefninu á tilsettum tíma. Doktorsnefnd getur þá mælt með því við fastanefnd deildar eða fræðasviðs að doktorsnámi verði hætt og nemanda gefist kostur á að brautskrást með prófgráðuna M.Phil., samkvæmt skilgreindri námsleið til M.Phil.-prófs í viðkomandi deild. Samþykki fastanefnd tillögu doktorsnefndar hefur nemandi 12 mánuði frá ákvörðun fastanefndar til að ljúka ritgerð/verkefni sem að mati skipaðs prófdómara stenst kröfur sem gerðar eru til M.Phil.-gráðu. Standist nemandi ekki kröfur innan tilskilinna tímamarka telst námi hætt án prófgráðu. Nemandi getur kært ákvörðun fastanefndar um breytingu á prófgráðu til deildarforseta skv. 50. gr. þessara reglna. -
Doktorsnafnbót
eftir
andlát.
Í sérstökum tilfellum er deild heimilt að veita doktorsnafnbót eftir andlát doktorsnema. Fyrir þarf að liggja fullbúin ritgerð eða lokadrög ritgerðar sem utanaðkomandi sérfræðingar geta metið hvort teljist tæk til varnar.
-
M.Phil.-gráða.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 17. janúar 2018.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 31. janúar 2018