Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Veiði - friðun

Undirritunardagur

30. janúar 2026

Útgáfudagur

4. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 103/2026

30. janúar 2026

AUGLÝSING

um hreindýraveiðar árið 2026.

Heimilt er að veiða allt að 936 hreindýr árið 2026. Þessi heimild er veitt með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun fjölda veiðiheimilda. Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til og með 15. september. Frá 15. júlí til 1. ágúst er einungis heimilt að veiða tarfa sem ekki eru í fylgd með kúm og að veiðarnar trufli ekki kýr og kálfa í sumarbeit. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september. Fyrstu tvær vikur veiðitíma kúa skulu veiðimenn og leiðsögumenn í lengstu lög forðast að fella mylkar kýr og veiða eftir fremsta megni geldar kýr. Á veiðisvæði 8 er heimilt að úthluta allt að 40 leyfum af kúaveiði frá 1. til 30. nóvember til þess að dreifa veiðiálagi á hjarðir á veiðisvæðinu.

Óheimilt er að veiða kálfa. Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kýr á svæðinu milli Jökulsár í Fljótsdal, Lagarfljóts og Jökulsár á Dal til að stuðla að stofnvexti á þeim hluta af veiðisvæði 2.

Veiðiheimildir árið 2026 skiptast sem hér segir eftir veiðisvæðum og kyni dýra:

  Kýr Tarfar Alls
Svæði 1 60 95 155
Svæði 2 80 70 150
Svæði 3 44 47 91
Svæði 4 0 5 5
Svæði 5 45 45 90
Svæði 6 40 55 95
Svæði 7 120 70 190
Svæði 8 95 35 130
Svæði 9 15 15 30
Samtals 499 437 936

Náttúruverndarstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimilda.

Veiðisvæðin og skipting þeirra eftir sveitarfélögum er óbreytt frá fyrra ári.

Þrátt fyrir skiptingu veiðiheimilda eftir veiðisvæðum getur Náttúruverndarstofnun, í samráði við Náttúrustofu Austurlands, flutt veiðiheimildir milli samliggjandi veiðisvæða þyki sýnt að hjarðir hafi fært sig milli þessara veiðisvæða eða aðrar sérstakar ástæður gefa tilefni til, sbr. 2. mgr. 6. gr. reglugerðar um stjórn hreindýraveiða, nr. 486/2003.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. reglugerðar um stjórn hreindýraveiða, nr. 486/2003, er Náttúruverndarstofnun heimilt að gera ráðstafanir til þess að veiði dreifist sem jafnast á veiðitímann á hverju svæði.

Veiðiheimildir þessar eru auglýstar í samræmi við 6. gr. reglugerðar um stjórn hreindýraveiða, nr. 486/2003, að fengnum tillögum Náttúruverndarstofnunar, sbr. 14. gr. laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 30. janúar 2026.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild — Útgáfudagur: 4. febrúar 2026

Tengd mál