Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

1. júlí 2024

Útgáfudagur

17. júlí 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 866/2024

1. júlí 2024

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

7.36 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1470 frá 21. maí 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.36.
8.28 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1469 frá 21. maí 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.28.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 1. júlí 2024.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 17. júlí 2024

Tengd mál