Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
21. febrúar 2023
Útgáfudagur
7. mars 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 219/2023
21. febrúar 2023
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
| 3.66 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/193 frá 30. janúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.66. | |
| 3.67 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/261 frá 6. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.67. | |
| 4.74 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/192 frá 30. janúar 2023 um framkvæmd á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.74. | |
| 4.75 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/253 frá 6. febrúar 2023 um framkvæmd á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.75. | |
| 7.28 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/190 frá 27. janúar 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.28. | |
| 7.29 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/191 frá 27. janúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.29. | |
| 7.30 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/252 frá 4. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.30. | |
| 8.20 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/180 frá 27. janúar 2023 um framkvæmd reglugerðar (ESB) 2022/2474 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.20. | |
| 8.21 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/250 frá 4. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.21. | |
| 8.22 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/251 frá 4. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.22. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 21. febrúar 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 7. mars 2023