Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
18. september 2025
Útgáfudagur
2. október 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1037/2025
18. september 2025
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna skógræktar- og landgræðslusvæða að Geitasandi og Geldingalæk.
Skipulagsstofnun staðfesti 18. september 2025 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. mars 2025.
Í breytingunni felst skilgreining á um 136 ha skógræktar- og landgræðslusvæði SL29 í landi Geldingalækjar. Þá er skógræktar- og landgræðslusvæði SL5 í landi Geitasands minnkað úr 1.010 ha í 660 ha. Landbúnaðarsvæði breytist til samræmis.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 18. september 2025.
F.h. forstjóra,
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 2. október 2025