Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ísafjarðarbær
Málaflokkur
Hafnamál, Ísafjarðarbær
Undirritunardagur
6. desember 2018
Útgáfudagur
21. desember 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1215/2018
6. desember 2018
GJALDSKRÁ
fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar.
I. KAFLI Gildissvið.
1. gr.
Gjaldskrá þessi gildir fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar og er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1.
II. KAFLI Um hafnagjöld.
2. gr.
Við ákvörðun hafnagjalda samkvæmt stærð skipa skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969.
3. gr.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs, ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.
Lestargjöld.
4. gr.
Af öllum skipum skal greiða lestargjald 15,85 kr. á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði. Undanþegin eru skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki aðra þjónustu.
Bryggjugjöld.
5. gr.
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða 7,85 kr. á mælieiningu fyrir skip að 20.000 brt en 9,44 kr. fyrir skip stærri en 20.000 brt fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið. Fiskiskip greiða þetta gjald eigi oftar en 26 sinnum í mánuði. Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, 111,45 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 124,50 kr. á mánuði. Bátar minni en 20 brt greiði þó aldrei lægra en 8.113 kr. á mánuði. Skip samkvæmt 2. mgr. 4. gr. eru undanþegin bryggjugjaldi.
Skip, sem ekki eru í rekstri né leggja upp afla hjá höfnum Ísafjarðarbæjar, skulu greiða fullt bryggjugjald fyrir hvern legudag og njóta ekki afsláttarkjara í formi mánaðargjalda. Skip sem ekki eru í rekstri telst það skip sem legið hefur lengur en einn mánuð í höfn eða leggur ekki upp afla hjá höfnum Ísafjarðarbæjar.
Vörugjöld.
6. gr.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
| 1. flokkur | 361,50 kr. á tonn | |||
| Bensín, brennsluolíur, kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu. | ||||
| 2. flokkur | 600,00 kr. á tonn | |||
| Lýsi og fiskimjöl. | ||||
| 3. flokkur | 661,50 kr. á tonn | |||
| a) | Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. | |
| b) | Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjavörur og ávextir. | |
| Vélar og tæki hvers konar og varahlutir til þeirra, svo sem heimilis- og skrifstofuvélar, bifreiðar, bifhjól, reiðhjól, hjólbarðar, bátar, flugvélar, hreyflar, mælitæki, húsbúnaður, vefnaðarvara og fatnaður. Útvarps- og sjónvarpstæki, hljóðfæri, úr, klukkur, myndavélar, sjónaukar, glysvarningur alls konar, vín, tóbak, sælgæti, snyrtivörur og lyf. | ||
| c) | Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt. Vörugjald greiðist ekki af bifreiðum ferðamanna, enda ferðist eigendur með sama skipi. | |
| d) | Af vörum sem er landað og lestað með strandsiglingum greiðist aðeins helmingur vörugjalda í hverjum verðflokki. |
| 4. flokkur | 1.667 kr. á tonn | |||
| Vörur sem ekki verða flokkaðar annars staðar eftir þyngd. | ||||
| 5. flokkur | aflagjald 1,58% | |||
| Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af 0,79% heildarverðmætis aflans skv. e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003. | ||||
| Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd. Gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði ef söluuppgjör berst ekki til hafnarinnar. | ||||
| Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu Íslands. Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, skal að lágmarki miðað við skiptaverð Verðlagsstofu skiptaverðs. | ||||
| Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega. | ||||
| Hámarksgjald samkvæmt 4. flokki | 6.674 kr. fyrir hvert tonn | |||
| Lágmarksgjald í öllum flokkum | 711 kr. | |||
Farþegagjöld.
7. gr.
| Fyrir hvern fullorðinn með farþegabátum og skemmtiferðaskipum | 125 kr. |
| Fyrir hvert barn með farþegabátum og skemmtiferðaskipum | 75 kr. |
Skemmtiferðaskip skulu skila inn farþegalistum minnst einum sólahring fyrir komu en farþegabátar með áætlunarsiglingar til og frá höfnum Ísafjarðarbæjar skila inn gögnum um fjölda farþega mánaðarlega.
Siglingavernd (ISPS).
8. gr.
| Öryggisgjald fyrir skip sem falla undir skilgreiningu hafnverndar | 46.128 kr. á komu |
| Öryggisgæsla fyrir öryggisvörð í dagvinnu | 5.396 kr. á klst. |
| Öryggisgæsla fyrir öryggisvörð í yfirvinnu | 8.786 kr. á klst. |
Þjónustugjaldskrá.
9. gr. Rafmagn.
| Rafmagnssala | 17,31 kr. á kWst. |
| Rafmagnsmælar fyrir smábáta | 59.318 kr. |
| Rafmagnstenglagjald fyrir flotbryggjur og trébryggjur | 5.228 kr. |
| Rafmagnstenglagjald fyrir hafskipakant | 9.693 kr. |
10. gr. Hafnsaga.
| Hafnsögugjald | 6,47 | kr. á mælieiningu |
| Hafnsögugjald til og frá höfn | 8.588 | kr. |
Hafnsögugjöld skulu greidd fyrir leiðsögn til hafnarinnar, að bólvirki eða lægi 4.294 kr. fyrir hvert skip, auk 6,47 kr. á mælieiningu (mestu brúttóstærð). Fyrir leiðsögn frá bólvirki eða lægi og úr höfninni greiðist sama gjald. Fyrir leiðsögn um höfnina skal greiða hálft hafnsögugjald.
11. gr. Leigugjöld.
| Leiga á gámavöllum, svæði A | 86 | kr. hver fermetri á mánuði |
| Leiga á gámavöllum, svæði B | 58 | kr. hver fermetri á mánuði |
| Leiga á gámavöllum, aðstaða við rafmagnsbrunna | 192 | kr. hver fermetri á mánuði |
| Leiga í geymsluporti Suðurtanga | 90 | kr. hver fermetri á mánuði |
| Hafnarbakkaleiga | 310 | kr. fyrir tonnið eða m³ á dag |
| Leiga á kranalykli | 3.807 | kr. hvert skipti |
| Leiga á lyftara m/manni | 11.057 | kr. á klst. |
| Leiga á flotgirðingu | 9.913 | kr. á klst. |
| Stöðuleyfi vinnuskúra á hafnarsvæði | 17.604 | kr. m² á ári |
Einungis er heimilt að hafa gáma sem eru í beinum tengslum við fermingu eða affermingu úr skipum. Gáma og annan varning skal fjarlægja við fyrsta tækifæri þegar vinnu við skip er lokið en ef því verður ekki viðkomið skal óskað leyfis hjá höfninni.
Óheimilt er að geyma veiðarfæri og tilheyrandi búnað á hafnarköntum. Einnig er óheimilt að setja eða geyma alls konar varning sem ekki er að koma eða fara í skip á svæði hafnarinnar.
Hafnarstarfsmönnum er heimilt að láta fjarlægja varning þann sem settur er á hafnarsvæðið á kostnað eiganda eða beita sektum allt að kr. 4.610 á sólarhring sé óskum um hreinsun ekki sinnt.
12. gr. Hafnsögubátur.
| Fyrir hverja byrjaða klst. á innri höfn | 22.744 kr. |
| Fyrir eina ferð með hafnsögumann | 22.744 kr. |
| Fyrir hverja byrjaða klst. utan innri hafnar | 47.424 kr. |
| Fyrir björgun, slef eða aðstoð við skip og báta | skv. samkomulagi |
13. gr. Vatnsgjald.
| Vatn fyrir báta undir 15 brt | 1.563 kr. á mánuði |
| Vatn fyrir báta 15-30 brt | 3.131 kr. á mánuði |
| Kalt vatn afgreitt til skipa yfir 30 brt, lágmarksmagn 15 tonn | 343 kr. á m³ |
| Vatn afgreitt utan reglubundins vinnutíma | 5.188 kr. fyrir útkall |
14. gr. Móttaka skipa.
| Festargjöld fyrir hvern starfsmann í dagvinnu | 10.831 kr. |
| Festargjöld fyrir hvern starfsmann í yfirvinnu | 16.425 kr. |
Greiða skal festargjald bæði við komu og brottför skipa. Þegar skip leggur að bryggju skal a.m.k. einn starfsmaður hafnarinnar taka á móti því. Heimilt er að veita undanþágu frá þessari reglu í sérstökum tilfellum.
15. gr. Sorphirðugjöld.
| Móttaka á sorpi ein ferð í Funa | 9.969 kr. |
Einnig skal greiða fyrir innvegið magn af sorpi skv. gjaldskrá sorpmóttakanda.
- Úrgangsgjald: Við komu skips til hafnar skal greiða 0,69 kr./brt gjald sem skal standa undir kostnaði vegna eftirlits umsýslu vegna móttöku á sorpi. Lágmarksgjald 6.028 kr. og hámarksgjald 51.100 kr.
- Úrgangsgjald: Gjald sem er lagt á vegna a-liðar má lækka ef skipstjóri getur sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð í skipinu, fast gjald 0,77 kr. á brt en þá er lágmarksgjald. 6.028 kr. en hámarksgjald 51.100 kr.
- Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á árinu greiða skv. b-lið fyrir fimmtu komu og allar komur eftir það.
- Skip og bátar sem hafa varanlega viðlegu í höfnum Ísafjarðarbæjar skulu greiða fast mánaðargjald vegna umsýslu og eftirlits hafnar vegna móttöku á sorpi. Gjaldið skal vera 6.028 kr. á mánuði.
-
Förgunargjald: Við komu skips til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. gr. laga nr. 33/2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land. Förgunargjaldið skal standa undir kostnaði við förgun úrgangs sem skilað er í land.
Farþegaskip yfir 60 m að lengd skulu greiða 2,55 kr. á hverja brt tölu skipsins og miðast gjaldið við eftirfarandi sorpmagn:Farþegaskip undir 30.000 brt 5 m³ Farþegaskip frá 30.000 brt 10 m³ Farþegaskip yfir 100.000 brt 15 m³ Öll önnur skip skulu greiða 2,55 kr. á grt og þá miðast gjaldið við 5 m³ af sorpi.
-
Leiti
skip
til
viðurkennds
aðila
um
móttöku
á
úrgangi
getur
það
fengið
álagt
förgunargjald
samkvæmt
e-lið
endurgreitt
enda
skili
það
áður
kvittun
móttökuaðilans
ásamt
réttum
upplýsingum
um
losun
magns.
Skilyrði
endurgreiðslu
kostnaðar
er
að
kvittun
móttökuaðila
hafi
borist
á
skrifstofu
hafna
Ísafjarðarbæjar
innan
tveggja
sólarhringa
frá
brottför
skips.
Kjósi skipstjóri eða útgerðarmaður eftir þjónustu viðurkennds sorpmóttökuaðila þá greiðir hann allan kostnað þar að lútandi og skal skila til hafnarinnar útfylltu eyðublaði um magn og sundurliðun þess úrgangs sem skilað er í land. Misbrestur á þessu getur leitt til tilkynningar til Umhverfisstofnunar. - Samkvæmt 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2014 um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum getur Umhverfisstofnun veitt skipum í áætlunarsiglingum sem hafa reglulega viðkomu í höfnum Ísafjarðarbæjar og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu Umhverfisstofnunar um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.
- Förgunargjald: Skip sem eru undanþegin gjaldskyldu skv. c-lið 1. tl. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga skulu eftir sem áður greiða fyrir losun og förgun sorps hvort sem óskað er eftir viðurkenndum móttökuaðila eða ekki.
16. gr. Vogargjöld.
| Almenn vigtun | 207 kr. á tonn |
| Vogargjald smábáta, lágmarksgjald | 763 kr. pr. löndun |
| Flutningabílar og skoðun á bílavog | 2.136 kr. á skipti |
| Lágmarksgjald fyrir vöruvigtun | 1.508 kr. hver einstök vigtun |
| Útkall við vigtun í yfirvinnu | 5.005 kr. |
17. gr. Viðlegugjöld.
| Bátar undir 20 brt | 8.243 kr. á mánuði |
| Bátar yfir 20 brt | 12.626 kr. á mánuði |
| Bátar undir 20 brt, fast legupláss | 10.469 kr. á mánuði |
| Bátar yfir 20 brt, fast legupláss | 16.291 kr. á mánuði |
| Daggjald, bátar undir 20 brt | 2.206 kr. |
| Daggjald, bátar yfir 20 brt | 2.257 kr. |
| Skip yfir 80 brt | 114 kr. á brt á mánuði |
| Uppsátursgjald | 2.620 kr. á mánuði |
| Daggjald eldiskvía við bryggju eftir 2 daga | 2.206 kr. |
18. gr. Skráningargjald og önnur gjöld.
| Kranagjald, löndun með hafnarkrana | 313 kr. á tonn |
| Úrtaksvigtunargjald fyrir löndun úr frystiskipum | 154 kr. á tonn |
III. KAFLI Um innheimtu og greiðslu hafnargjalda.
19. gr.
Hafnarstjóri sér um innheimtu allra hafnargjalda og skal greiða gjöldin á skrifstofu hafnarinnar. Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er heimilt að reikna hæstu lögleyfðu dráttarvexti á skuldina.
20. gr.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til hafnarinnar vegna skipsins. Öll erlend skip sem koma til hafnarinnar skulu hafa innlendan umboðsmann sem er þá einnig ábyrgur fyrir öllum lögboðnum gjöldum og kostnaði sem til fellur vegna þeirra. Skipstjóra er skylt að afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess, og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinunum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda skipagjaldsins. Að svo miklu leyti sem í gjaldskrá þessari eru ekki ákveðnir fastir gjalddagar á gjöldum skal greiða þau áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
21. gr.
Vörugjöld greiðir móttakandi af vörum sem koma til hafnarinnar og sendandi af vörum sem fluttar eru úr höfninni. Ef margir eiga vörur sem fluttar eru með sama skipi skal afgreiðslumaður skipsins standa hafnarsjóði skil á greiðslum. Ef skip hefur ekki farm sinn skráðan ber skipstjóri ábyrgð á greiðslu vörugjaldsins. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir. Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörunar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar á skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt. Hafnarsjóður hefur haldsrétt í skráningar- og þjóðernisskírteinum skips til tryggingar gjaldinu. Aflagjald og vörugjald af útflutningi skal auk þess tryggt með veði í útflutningsbirgðum þess aðila er skuldar gjöldin.
22. gr.
Á verð skv. verðskrá þessari, nema á farþegagjöld skv. 7. gr. og þjónustu við erlend skip, er lagður 24% virðisaukaskattur, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
23. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi. Skipagjöldin eru tryggð með lögveði í skipinu og gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðskuldum, sbr. ákvæði 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003.
IV. KAFLI Gildistaka.
24. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar er samþykkt af hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar á 200. fundi 8. október 2018, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004, og bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 6. desember 2018 il þess að öðlast gildi frá og með 1. janúar 2019.
Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar nr. 1234/2017.
Ísafirði, 6. desember 2018.
Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 21. desember 2018