Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

22. desember 2016

Útgáfudagur

27. desember 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1167/2016

22. desember 2016

AUGLÝSING

um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2017.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2017 verður 22,5% af tekjuskattsstofni að 10.016.488 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 10.016.489 kr. Meðalútsvar á árinu 2017 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2017 verður því 36,94% af tekjuskattsstofni að 10.016.488 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 10.016.489 kr.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2017 vera 634.880 krónur, eða 52.907 krónur að meðaltali á mánuði.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2016.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2016

Tengd mál