Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar, Fjármálastarfsemi, Húsnæðismál, Dómsmál, Lögreglumál, Kosningar, Lífeyrissjóðir, Samkeppnismál, Vátryggingar, Refsilög, Endurskoðun, Fjölmiðlar, Lögmenn
Undirritunardagur
21. desember 2018
Útgáfudagur
27. desember 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 141/2018
21. desember 2018
LÖG
um breytingu á ýmsum lögum vegna afnáms ákvæða um uppreist æru.
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI
Breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.
1. gr.
84. og 85. gr. laganna falla brott.
II. KAFLI
Breyting á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, með síðari breytingum.
2. gr.
5. gr. laganna orðast svo:
Enginn telst hafa óflekkað mannorð sem hlotið hefur dóm fyrir refsivert brot og refsing er óskilorðsbundið fangelsi, frá þeim degi þegar dómur er upp kveðinn og þar til afplánun er að fullu lokið.
III. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
kosningar
til
sveitarstjórna,
nr.
5/1998,
með
síðari
breytingum.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
- Í stað orðanna „hefur óflekkað mannorð“ í 1. mgr. kemur: afplánar ekki óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir refsivert brot.
- 2. og 3. mgr. falla brott.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um dómstóla, nr. 50/2016, með síðari breytingum.
4. gr.
Í stað orðanna „gerst sekur um refsivert athæfi sem má telja svívirðilegt að almenningsáliti“ í 5. tölul. 2. mgr. 13. gr. laganna kemur: hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára.
5. gr.
Í stað orðanna „gerst sekur um refsivert athæfi sem má telja svívirðilegt að almenningsáliti“ í 5. tölul. 2. mgr. 21. gr. laganna kemur: hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára.
6. gr.
Í stað orðanna „gerst sekur um refsivert athæfi sem má telja svívirðilegt að almenningsáliti“ í 5. tölul. 2. mgr. 29. gr. laganna kemur: hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára.
7. gr.
Í stað orðanna „gerst sekir um refsivert athæfi sem má telja svívirðilegt að almenningsáliti“ í 3. mgr. 39. gr. laganna kemur: hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að þeir urðu fullra 18 ára.
V. KAFLI Breyting á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991,
8. gr.
Í stað orðanna „gerst sekir um refsivert athæfi sem má telja svívirðilegt að almenningsáliti“ í 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að þeir urðu fullra 18 ára.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 81. gr. laganna:
- Orðin „hafi óflekkað mannorð“ falla brott.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hann má ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef hann var fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
VI. KAFLI Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008,
10. gr.
Í stað orðanna „gerst sekir um refsivert athæfi sem má telja svívirðilegt að almenningsáliti“ í 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að þeir urðu fullra 18 ára.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um landsdóm, nr. 3/1963, með síðari breytingum.
11. gr.
3. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo: Hafi hvorki hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára né sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem dómarar verða almennt að njóta.
VIII. KAFLI Breyting á lögum um samningsbundna gerðardóma, nr. 53/1989,
12. gr.
3. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo: Þeir mega ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
IX. KAFLI Breyting á lögum um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991,
13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 18. gr. laganna:
- Orðin „óflekkað mannorð“ í 1. málsl. falla brott.
- Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þá mega þeir ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
14. gr.
Í stað orðanna „hafi ekki orðið sannur að refsiverðu athæfi sem verður talið svívirðilegt að almenningsáliti eða“ í 4. tölul. 2. mgr. 46. gr. laganna kemur: hafi hvorki hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára né orðið sannur að.
X. KAFLI
Breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, með síðari breytingum.
15. gr.
Í stað orðanna „hafi ekki orðið sannur að refsiverðu athæfi sem verður talið svívirðilegt að almenningsáliti eða“ í 4. tölul. 2. mgr. 75. gr. laganna kemur: hafi hvorki hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára né orðið sannur að.
XI. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
framkvæmdarvald
og
stjórnsýslu
ríkisins
í
héraði,
nr.
50/2014,
með
síðari
breytingum.
16. gr.
Í stað orðanna „Hefur hvorki gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti“ í e-lið 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: Hefur hvorki hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára.
XII. KAFLI
Breyting á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum.
17. gr.
Í stað orðanna „hafa hvorki gerst sekir um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti“ í e-lið 2. mgr. 28. gr. laganna kemur: hafa hvorki hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að þeir urðu fullra 18 ára.
18. gr.
Í stað orðanna „gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti“ í 28. gr. a laganna kemur: hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára.
XIII. KAFLI
Breyting á lögum um lögmenn, nr. 77/1998, með síðari breytingum.
19. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
- 3. tölul. 1. mgr. orðast svo: hefur aldrei hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára.
- Í stað orðanna „fengnum meðmælum“ í 2. mgr. kemur: fenginni umsögn.
- Við 2. mgr. bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Víkja má frá skilyrði 3. tölul. 1. mgr. að fenginni umsögn Lögmannafélags Íslands þegar fimm ár eru liðin frá því að afplánun lauk að fullu en þó ekki ef eðli brotsins og háttsemi umsækjanda er til þess fallin að rýra það traust sem lögmenn þurfa að njóta. Við matið skal m.a. líta til eðlis og alvarleika brotsins, þar á meðal þeirra hagsmuna sem brotið var gegn, ásetnings og aldurs umsækjanda þegar brot var framið, hvort brotið hafi verið framið í tengslum við atvinnurekstur og þess tjóns sem brotið olli. Þá skal einnig meta háttsemi umsækjanda frá því að afplánun lauk, þá einkum hvort umsækjandi hafi ólokin mál í refsivörslukerfinu.
20. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. laganna:
- Í stað orðanna „fengnum meðmælum“ í 2. mgr. kemur: fenginni umsögn.
-
Við
bætist
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Hafi lögmaður verið sviptur réttindum ótímabundið með dómi skv. 68. gr. almennra hegningarlaga er honum heimilt þegar fimm ár eru liðin frá því að afplánun lauk að fullu að bera undir dómstóla samkvæmt reglum um meðferð sakamála hvort fella skuli niður réttindasviptinguna. Við mat á því hvort fella skuli niður sviptingu réttinda skal dómari líta til þess hvort eðli brotsins og háttsemi umsækjanda er til þess fallin að rýra það traust sem lögmenn þurfa að njóta, sbr. 2. mgr. 6. gr.
XIV. KAFLI
Breyting á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016, með síðari breytingum.
21. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 22. gr. laganna:
- Orðin „skulu hafa óflekkað mannorð og“ falla brott.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá mega þeir ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XV. KAFLI
22. gr.
Orðin „hafa óflekkað mannorð“ í 1. málsl. 4. mgr. 16. gr. laganna falla brott.
XVI. KAFLI
Breyting á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.
23. gr.
Í stað orðanna „óflekkað mannorð“ í 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. a laganna kemur: gott orðspor.
XVII. KAFLI Breyting á lögum um húsnæðissamvinnufélög, nr. 66/2003,
24. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. mgr. 6. gr. laganna:
- Á eftir orðunum „skulu vera lögráða“ kemur: og.
- Orðin „hafa óflekkað mannorð“ falla brott.
XVIII. KAFLI
Breyting á lögum um endurskoðendur, nr. 79/2008, með síðari breytingum.
25. gr.
3. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo: hafa ekki hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef hann var fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XIX. KAFLI
Breyting á innheimtulögum, nr. 95/2008, með síðari breytingum.
26. gr.
Í stað orðanna „óflekkað mannorð“ í b-lið 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: gott orðspor.
XX. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
ívilnanir
til
nýfjárfestinga
á
Íslandi,
nr.
41/2015,
með
síðari
breytingum.
27. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á n-lið 5. gr. laganna:
- Í stað orðanna „hafi óflekkað mannorð og“ kemur: og hafi.
- Við bætist: þeir mega ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XXI. KAFLI
Breyting á samkeppnislögum, nr. 44/2005, með síðari breytingum.
28. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 7. gr. laganna:
- Orðin „skulu hafa óflekkað mannorð og“ falla brott.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá mega þeir ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XXII. KAFLI
Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, með síðari breytingum.
29. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 8. gr. laganna:
- Orðin „skulu hafa óflekkað mannorð og“ falla brott.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá mega þeir ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XXIII. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
innstæðutryggingar
og
tryggingakerfi
fyrir
fjárfesta,
nr.
98/1999,
með
síðari
breytingum.
30. gr.
Í stað orðanna „óflekkað mannorð“ í 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: gott orðspor.
XXIV. KAFLI
Breyting á lögum um kauphallir, nr. 110/2007, með síðari breytingum.
31. gr.
Í stað orðanna „óflekkað mannorð“ í 1. málsl. 2. mgr. 11. gr. laganna kemur: gott orðspor.
XXV. KAFLI
Breyting á lögum um Landsvirkjun, nr. 42/1983, með síðari breytingum.
32. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 5. gr. laganna:
- Í stað orðanna „þeir skulu hafa óflekkað mannorð og“ í 1. málsl. kemur: og þeir.
- Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þá mega þeir ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XXVI. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
opinbert
eftirlit
með
fjármálastarfsemi,
nr.
87/1998,
með
síðari
breytingum.
33. gr.
Í stað orðanna „óflekkað mannorð“ í 2. málsl. 3. mgr. 6. gr. laganna kemur: gott orðspor.
XXVII. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
rafræna
eignarskráningu
verðbréfa,
nr.
131/1997,
með
síðari
breytingum.
34. gr.
Í stað orðanna „óflekkað mannorð“ í 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: gott orðspor.
XXVIII. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
skyldutryggingu
lífeyrisréttinda
og
starfsemi
lífeyrissjóða,
nr.
129/1997,
með
síðari
breytingum.
35. gr.
Í stað orðanna „óflekkað mannorð“ í 1. málsl. 1. mgr. 31. gr. laganna kemur: gott orðspor.
XXIX. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
36. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. tölul. 85. gr. laganna:
- Orðin „óflekkað mannorð eða hafi“ falla brott.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá má hann ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef hann var fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XXX. KAFLI Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
37. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. tölul. 2. mgr. 48. gr. laganna:
- Í stað orðanna „hafa óflekkað mannorð“ í 2. málsl. kemur: og.
- Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þeir mega ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
38. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. tölul. 1. mgr. 91. gr. laganna:
- Orðin „hafa óflekkað mannorð“ í 2. málsl. falla brott.
- Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þá mega þeir ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XXXI. KAFLI Breyting á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016,
39. gr.
Í stað orðanna „óflekkað mannorð“ í 2. málsl. 1. mgr. 135. gr. laganna kemur: gott orðspor.
XXXII. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
stéttarfélög
og
vinnudeilur,
nr.
80/1938,
með
síðari
breytingum.
40. gr.
Í stað orðanna „hafa óflekkað mannorð“ í 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. laganna kemur: hann má ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef hann var fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
41. gr.
Í stað orðanna „og hafa óflekkað mannorð“ í 1. málsl. 42. gr. laganna kemur: og mega ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
42. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 46. gr. laganna:
- Orðin „sem eru fjár síns ráðandi og hafa óflekkað mannorð“ falla brott.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þeir þurfa að vera fjár síns ráðandi og þeir mega ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið.
XXXIII. KAFLI Gildistaka.
43. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2019.
Gjört á Bessastöðum, 21. desember 2018.
Guðni
Th.
Jóhannesson.
(L.
S.)
Sigríður Á. Andersen.
A deild - Útgáfud.: 27. desember 2018