Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Gjaldeyrismál

Undirritunardagur

2. apríl 2019

Útgáfudagur

2. apríl 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 311/2019

2. apríl 2019

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 200/2017 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglnanna:

  1. 1. mgr. 2. gr. orðast svo: Fjármagnshreyfingar á milli landa í innlendum gjaldeyri og erlendum gjaldeyri skv. 1.–4. og 6. tölul. 1. mgr. 13. gr. b laga um gjaldeyrismál eru undanþegnar takmörkunum 1., 2. og 3. mgr. sömu greinar, að undanskildum fjármagnshreyfingum vegna viðskipta með aflandskrónueignir sem falla undir lög um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.
  2. 2. mgr. 2. gr. fellur brott.

2. gr.

2. málsl. 2. mgr. 4. gr. reglnanna fellur brott.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:

  1. 1. mgr. 5. gr. orðast svo: Lántökur og lánveitingar í innlendum og erlendum gjaldeyri milli innlendra og erlendra aðila eru undanþegnar takmörkunum skv. 1.–3. mgr. 13. gr. g laga um gjaldeyrismál.
  2. 2., 3. og 5. mgr. 5. gr. falla brott.
  3. 4. mgr. 5. gr. orðast svo: Endurgreiðslur lána í innlendum og erlendum gjaldeyri milli innlendra og erlendra aðila eru undanþegnar takmörkunum skv. 4.–5. mgr. 13. gr. g laga um gjaldeyrismál.

4. gr.

14. gr. reglnanna ásamt fyrirsögn fellur brott.

5. gr.

Í stað „15.“ Í 2. mgr. 9. gr. reglnanna kemur: 16.

6. gr.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 4. mgr. 13. gr. b, 5. mgr. 13. gr. c, 4. og 5. mgr. 13. gr. o, 3. mgr. 13. gr. p og 1. og 3. mgr. 14. gr. laga nr. 87/1992, með síðari breytingum. Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 2. apríl 2019.

Seðlabanki Íslands,

Már Guðmundsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvstjóri gjaldeyriseftirlits.

B deild - Útgáfud.: 2. apríl 2019

Tengd mál