Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

21. júní 2019

Útgáfudagur

17. júlí 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 669/2019

21. júní 2019

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, nr. 380/2018.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela nr. 380/2018:

1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/901 frá 25. júní 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.3.
1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1656 frá 6. nóvember 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.4.
2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/899 frá 25. júní 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.2.
2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/1653 frá 6. nóvember 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.3.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 21. júní 2019.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 17. júlí 2019

Tengd mál

Stjórnartíðindi